Axel Helgason trillukarl ársins

Axel Helgason hefur gert frábært mót á báti sínum Sunnu …
Axel Helgason hefur gert frábært mót á báti sínum Sunnu Rós, sem hann smíðaði sjálfur. Hér tekur hann við verðlaununum úr hendi Elizu Reid forsetafrúr. Myndin er frá Jóni Svavarssyni/motiv.is

Sýningin Sjávarútvegur 2016 var opnuð í gær að viðstöddu fjölmenni. Sýningin er í Laugardalshöll og mun standa yfir til föstudags. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Jean Reid klipptu á borða við opnun sýningarinnar, eftir að Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegsráðherra hafði flutt opnunarávarp.

Axel Helgason var tilnefndur til verðlauna af Landssambandi smábátaeigenda og veitti þeim móttöku við hátíðlega athöfn á sýningunni.

Axel smíðaði sjálfur bát sinn Sunnu Rós og lauk þeirri smíð árið 2014. Sama ár hóf hann makrílveiðar.  Sunna Rós er útbúin makrílveiðibúnaði sem Axel smíðaði og er eftirtektarvert hve einfaldur, léttur og afkastamikill hann er.  Auk þess er hugsað fyrir öryggi sjómannsins um borð því krókar makrílslóðanna eru að mestu leyti utan og aftan á bátnum.

Sunna Rós er með aflahæstu makrílbátunum 2016 þrátt fyrir Axel hafi verið einn um borð.  

Þá hefur hann einnig stundað grásleppuveiðar sl. 2 ár með góðum árangri. Grásleppunetin fellir hann með fellingarvél sem hann smíðaði og tekur ekki nema nokkrar mínútur að fella hvert net. 

Öryggisatriði eru Axel ofarlega í huga og við grásleppuveiðarnar setur hann léttan álkassa aftan á bátinn þar sem grásleppunetin eru dregin gegnum niðurleggjara en svo lögð upp úr kassanum. Því er minni hætta á að áhöfn sé nálægt eða við veiðarfæri þegar þau eru lögð aftur í sjó. Það þarf varla að taka það fram að auðvitað smíðaði Axel þennan búnað sjálfur.

Sjá nánar um málið á

<a href="http://www.smabatar.is/2016/09/axel-helgason-trillukarl-arsin.shtml">heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.</a>
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »