Frá og með 6. desember næstkomandi mun Eimskip hætta siglingum til Hamborgar í Þýskalandi og hefja siglingar til vöggu sjávarútvegs þar í landi, Bremerhaven.
Þetta kemur fram í frétt á vefsvæði félagsins.
Að sögn er um að ræða lið í uppbyggingu á siglingakerfi félagsins og standa vonir til að breytt fyrirkomulag verði til þess að skapa betri tengingar fyrir viðskiptavini félagins við aðra markaði, sem og að stytta siglingatímann.
Fyrirhugaðar eru miklar breytingar á hafnarsvæðinu í Hamborg um það leyti sem Eimskip flytur viðkomuhöfn sína um set. Er því mat Eimskips að þá sé einmitt lag að ráðast í framangreindar breytingar samhliða hafnarframkvæmdunum.
Gámahöfnin í Bremerhaven er sú fjórða stærsta í Evrópu og henni fylgja framúrskarandi tengimöguleikar við Asíu, Afríku og Suður- sem Norður-Ameríku, eftir því sem fram kemur í frétt Eimskips.
Haft er eftir Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips, að „flutningurinn yfir til Bremerhaven skiptir miklu máli fyrir framtíðaruppbyggingu Eimskips á siglingakerfi félagsins. Höfnin í Bremerhaven opnar mikla möguleika fyrir viðskiptavini okkar í sjávarútvegi og einnig fyrir bæði inn- og útflytjendur á Íslandi, í Færeyjum og Noregi. Við fögnum því að hafa náð góðu samkomulagi við EUROGATE Container Terminal Bremerhaven og tökum fagnandi þeim tækifærum sem opnast við þessa tengingu. Á sama tíma kveðjum við Hamborgarhöfn með söknuði, en í ár eru liðin 90 ár frá því að Eimskip hóf siglingar til Hamborgar“.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.853 kg |
Þorskur | 271 kg |
Sandkoli | 102 kg |
Ýsa | 8 kg |
Samtals | 2.234 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.853 kg |
Þorskur | 271 kg |
Sandkoli | 102 kg |
Ýsa | 8 kg |
Samtals | 2.234 kg |