Segir sjómenn greiða útgerðum styrk

Bergvin Eyþórsson segir olíuverðsviðmiðið auka fjárhagslegan hlut útgerða á kostnað …
Bergvin Eyþórsson segir olíuverðsviðmiðið auka fjárhagslegan hlut útgerða á kostnað sjómanna. Mynd af heimsíðu Verk Vest.

Öll fyrirtæki eiga að takast á við sveiflur í rekstri með öðrum aðgerðum en þeim að seilast í vasa starfsfólks síns, segir Bergvin Eyþórsson, trúnaðarmaður á Stefni ÍS-28, sem situr í samningaráði sjómanna hjá Verk Vest. Hann segir í grein á vefsvæði Verk Vest hlut sjómanna verulega skertan vegna olíuverðsviðmiða og niðurstaða núverandi fyrirkomulags sé „klárlega rekstrarstyrkur frá sjómönnum til handa útgerð“.

Olíuverðsviðmiðið sem er í gildi segir Bergvin hafa verið sett á í því augnamiði að jafna út sveiflur í olíuverði. Olíuverð sé stór póstur í rekstri útgerða og til að útgerðir lendi ekki í rekstrarvandræðum vegna sveiflna í olíuverði sé umrætt olíuverðsviðmið til að taka mesta kúfinn af sveiflunum, ekki til að greiða niður olíu til lengri tíma.

Að mati Bergvins er viðmiðið sem notast er við í dag gríðarlega óréttlátt.

Máli sínu til stuðnings tekur Bergvin dæmi um togara með 15 menn í áhöfn sem fiskar fyrir 100 milljónir á mánuði miðað við núverandi verðgildi. Sé horft til liðinna 10 ára á þessu skipi hafi sjómenn engan ávinning haft af olíuverðsviðmiðinu, en hins vegar hafi rúmlega 280 milljónir af launum sjómanna skipsins runnið til útgerðarinnar.

Sé horft aftur til ársins 1987, þegar tenging við olíuverð tók gildi, hafi útgerðarmenn hagnast á þessum reglum í 269 mánuði en sjómenn hafi einungis hagnast á fyrirkomulaginu í 23 mánuði og 65 mánuðir hafi komið út á sléttu.

Grein Bergvins má lesa í heild sinni á heimasíðu Verk Vest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 440,00 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 117,89 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 169,02 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 837 kg
Þorskur 204 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.052 kg
24.4.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 5.228 kg
Samtals 5.228 kg
24.4.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Grásleppunet
Grásleppa 1.879 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 1.986 kg
24.4.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt
Ýsa 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 440,00 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 117,89 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 169,02 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 837 kg
Þorskur 204 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.052 kg
24.4.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 5.228 kg
Samtals 5.228 kg
24.4.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Grásleppunet
Grásleppa 1.879 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 1.986 kg
24.4.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt
Ýsa 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »