Hönnuðu sjálfvirkar vatnsskurðarvélar í norskan togara

Nýsmíðin Ramoen er 75 metra langur frystitogari sem er útbúinn …
Nýsmíðin Ramoen er 75 metra langur frystitogari sem er útbúinn nýrri tækni frá íslenska fyrirtækinu Völku, fyrst skipa. mbl.is/Arnfinn Mauren

Íslenska fyrirtækið Valka hefur hannað nýja sjálfvirka vatnsskurðarvél í vinnslulínu nýs norsks frystitogara.

„Við erum búnir að smíða þessa vatnsskurðarvél í þetta skip, Ramoen. Þessar vélar hafa verið í landvinnslum í fjögur ár, en þetta er fyrsta vélin sem fer í sjóferð,“ segir Ágúst Sigurðarson markaðsstjóri Völku.

Valka hefur þegar smíðað aðra slíka vél sem fer í Sólberg ÓF-1, sem er nýtt skip Ramma hf. Það skip leggur hins vegar ekki í sína fyrstu sjóferð fyrr en eftir áramótin.

„Ramoen er að fara í sína fyrstu sjóferð í næstu viku og verður þar með fyrsta skipið sem er útbúið þessari nýju tækni og getur því fullunnið svona afurðir um borð,“ segir Ágúst.

Munurinn liggur fyrst og fremst í því að eiga þann möguleika að geta framleitt sjófrystar beinlausar afurðir um borð í skipum, sem eru gríðarlega verðmætar afurðir. 

Nýja vatnsskurðarvélin frá Völku er bylting í fullvinnslu afurða til …
Nýja vatnsskurðarvélin frá Völku er bylting í fullvinnslu afurða til sjós. Myndin er aðsend.

„Það er mikill spenningur á markaðnum hjá Norðmönnum að fá vörurnar sem þeir munu framleiða með tækninni frá okkur,“ segir Ágúst. 

Sú framför sem næst með þessari nýju tækni er annars vegar sá að geta skorið beingarðinn sjálfvirkt úr og hins vegar að geta skorið flökin niður í bita um borð. „Það hafa menn bara ekki haft aðstöðu eða mannskap til að gera úti á sjó hingað til,“ segir Ágúst Sigurðarson, markaðsstjóri Völku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »