Það sem af er ári er afli íslenskra skipa í makríl og norsk-íslenskri síld meiri en árið 2015, en kolmunnaafli hefur dregist saman.
Þetta kemur fram í yfirliti Fiskistofu, sem hefur tekið saman yfirlit yfir afla fyrstu níu mánuði ársins í norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna.
Makrílvertíð lauk fyrir nokkru eða undir lok septembermánaðar. Enginn makrílafli barst í veiðarfæri íslenskra skipa í nóvembermánuði, en í október veiddust 1.341 tonn sem meðafli við síldveiðar austur af landinu.
Heildarafli íslenskra skipa á vertíðinni er 172,2 þúsund tonn. Þetta er 1,7% meiri afli en á vertíðinni 2015 þegar hann var 169,3 þúsund tonn.
Íslensk skip lönduðu alls 152,6 þúsund tonnum eða 89% aflans úr íslenskri lögsögu, en 11,4 þúsund tonnum úr alþjóðlegu hafsvæði og 6,8 þúsund tonnum úr grænlenskri lögsögu.
Aflahæsta skipið á makrílveiðunum á vertíðinni er Venus NS-150 með 11,6 þúsund tonn. Annað sætið vermir Víkingur AK-100 með 9,6 þúsund tonn og Vilhelm Þorsteinsson EA-11 er þriðji með 9 þúsund tonn.
Afli íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum í nóvember var 1.012 tonn. Í reynd eru þetta aðeins tvær landanir, hjá Hugin VE-55 sem landaði aflanum 1. nóvember, alls 478 tonnum, og Aðalsteinn Jónsson landaði 534 tonnum.
Heildarafli íslenskra skipa á fyrstu ellefu mánuðum ársins er nokkuð meiri en á síðasta ári. Íslensku skipin höfðu landað 47,9 þúsund tonnum á yfirstandandi vertíð miðað við 42,6 þúsund tonn á sama tíma í fyrra. Þar af hafa íslensku skipin fengið 46,6 þúsund tonn úr íslenskri lögsögu eða 99,8% af afla úr norsk-íslenska síldarstofninum.
Aflahæsta skipið á vertíðinni er Börkur NK-122 með 5.284 tonn og Beitir NK-123 með 4.885 tonn.
Í nýliðnum mánuði veiddu íslensk skip aðeins 137 tonn af kolmunna sem komu sem meðafli við síldveiðar.
Það sem af er ári hafa íslensk skip veitt 164,3 þúsund tonn af kolmunna. Á sama tíma í fyrra var aflinn nokkuð meiri eða 188 þúsund tonn. Mestur afli á yfirstandandi vertíð var veiddur úr lögsögu Færeyja eða alls 154,6 þúsund tonn og úr íslenskri lögsögu var aflað 8 þúsund tonna.
Aflahæsta skipið í kolmunna á ofangreindu tímabili er Beitir NK-123 með 19,3 þúsund tonn og Börkur NK-122 með 19,2 þúsund tonn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 956 kg |
Þorskur | 100 kg |
Samtals | 1.056 kg |
17.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.905 kg |
Ýsa | 339 kg |
Steinbítur | 65 kg |
Keila | 12 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 2.324 kg |
17.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.227 kg |
Þorskur | 136 kg |
Samtals | 1.363 kg |
17.4.24 Flugaldan AK 14 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.476 kg |
Þorskur | 111 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.595 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 956 kg |
Þorskur | 100 kg |
Samtals | 1.056 kg |
17.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.905 kg |
Ýsa | 339 kg |
Steinbítur | 65 kg |
Keila | 12 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 2.324 kg |
17.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.227 kg |
Þorskur | 136 kg |
Samtals | 1.363 kg |
17.4.24 Flugaldan AK 14 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.476 kg |
Þorskur | 111 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.595 kg |