Öngþveiti á Austfjarðamiðum

Barði NK í barningi.
Barði NK í barningi. mbl.is/Hákon Ernuson

Þessa dagana er mikill fjöldi fiskiskipa á Austfjarðamiðum.

Þegar staðan var könnuð í gær voru þar ísfisktogararnir Ljósafell, Barði, Gullver, Drangavík, Brynjólfur, Suðurey og Múlaberg ásamt frystitogurunum Þerney, Höfrungi III, Kleifabergi, Sigurbjörgu og Hrafni Sveinbjarnarsyni.

Auk þessara togara var tugur línubáta á miðunum. Ástæðan fyrir þessum mikla togarafjölda eystra er sú að allir eru þeir að keppast við að veiða annað en þorsk og meiri líkur eru taldar á að fá ufsa, karfa og grálúðu á Austfjarðamiðum en annars staðar.

Þetta kemur fram á vefsvæði Síldarvinnslunnar.

„Menn vilja helst hafa frið á sínum hefðbundnu miðum“

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gær og var afli skipsins 100 tonn, þar af 70 tonn þorskur.

Jóhann Örn Jóhannsson skipstjóri sagði að mikið hefði verið haft fyrir að veiða annað en þorsk í túrnum. Byrjað var vestur á Öræfagrunni, síðan haldið á Stokksnesgrunn og þá reynt fyrir sér í Lónsdýpi, Berufjarðarál og Utanfótar. Loks var haldið norður í Seyðisfjarðardýpi og endað á Digranesflakinu.

Allan tímann var reynt að veiða annað en þorsk en árangurinn var takmarkaður. Á miðunum norður frá var nóg af þorski að hafa og þar fékk Barði drjúgan hluta af sínum afla. Aðspurður sagði Jóhann að mönnum væri ekkert alltof vel við að hafa allan þennan togaraflota eystra, menn vildu helst hafa frið á sínum hefðbundnu miðum en því væri ekki alltaf að heilsa.

Barði heldur á ný til veiða í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 209 kg
Samtals 209 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 209 kg
Samtals 209 kg

Skoða allar landanir »