Nýsmíðin Ramoen er engin smásmíði og útbúin bestu fáanlegu tækni – þar á meðal sjálfvirkum vatnsskurðarvélum frá íslensku fyrirtæki.
Smíði skipsins fór lítillega fram úr áætlunum sökum breytinga sem gerðar voru á því meðan á ferlinu stóð, en það er nú klárt á veiðar. Heildarkostnaður við smíðina nemur rúmum fjórum og hálfum milljarði króna.
Brúin er gíðarstór og útbúin bestu fáanlegu tækjum og tólum.
mbl.is/Sindre Sjong
Markmið útgerðarinnar er að skipið sé að veiðum um 330 daga ársins og allt kapp er lagt á að koma afla í gegnum vinnslu og í frost á sem skemmstum tíma til að tryggja gæði afurðanna.
Meðal þeirra nýjunga sem sjá má um borð er vatnsskurðarvél sem íslenska fyrirtækið Valka hannaði í skipið.
Bílskúrinn, eða innra togdekkið, er líkara stórum keilusal en innra togdekki.
mbl.is/Sindre Sjong
Öll aðstaða fyrir áhöfn er eins og best verður á kosið og án efa á pari við það besta sem gerist í bransanum. Eldhúsið er stórt og öllum helstu nýjungum búið, svo seint ætti að væsa um togarajaxlana á Ramoen.
Kokkurinn stýrði hönnun eldhússins sjálfur og kveðst hæstánægður með hvernig til tókst.
mbl.is/Sindre Sjong
Aftursvipurinn er tilkomumikill.
mbl.is/Sindre Sjong
Fleiri myndir og frekari umfjöllun geta áhugasamir kynnt sér hér.