Hagkvæmari og umhverfisvænni flutningar

Með nýju fyrirkomulagi eykst afkastageta Eimskipa til og frá Norður-Ameríku …
Með nýju fyrirkomulagi eykst afkastageta Eimskipa til og frá Norður-Ameríku og Evrópu til muna. mbl.is/Rósa Braga

Eimskip mun í lok febrúar gera breytingar á siglingakerfi sínu með það fyrir augum að styrkja enn frekar þjónustu við viðskiptavini félagsins.

Mikil aukning hefur verið í inniflutningi til Íslands á undanförnum misserum sem aukið hefur ójafnvægi í flutningum í siglingakerfi félagsins, að því er fram kemur á heimasíðu Eimskipa.

Með þessum breytingum og fjölgun um eitt 700 gámaeininga skip mun afkastageta félagsins til og frá Evrópu og Norður-Ameríku aukast um 7-11%.

Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessar:

  • Ný rauð leið mun þjónusta Ísland, Færeyjar, Danmörku, Noreg, Svíþjóð og Pólland með tveimur skipum. Með rauðu leiðinni eykst afkastageta og skilvirkni siglingakerfisins og tækifæri gefast til vaxtar.
  • Grænu leiðinni, sem þjónustar Bandaríkin og Kanada, verður breytt þannig að hún mun sigla til og frá Íslandi, en með umskipun í Reykjavík verður hægt að auka bæði ferðatíðni og afkastagetu leiðarinnar. Styður sú breyting enn frekar við uppbyggingu flutninga á milli Norður-Ameríku og Evrópu, en góður vöxtur hefur verið í þeim flutningum undanfarin ár.
  • Gráa leiðin, sem verið hefur í þjónustu við Færeyjar, Skotland og Skandinavíu, fær nú annað hlutverk en verið hefur þar sem hún mun framvegis sinna vikulegri þjónustu í strandflutningum á Íslandi, auk þess að þjóna áfram Færeyjum og Skotlandi. Ferðatíðni og afkastageta í strandsiglingum mun aukast með vikulegum siglingum gráu leiðarinnar norður fyrir Ísland til Bretlands, með viðkomu í Færeyjum þar sem tenging næst við önnur skip félagsins. Strandflutningum verður eins og áður sinnt af bláu og gulu leiðinni sem þjónusta Grundartanga, Reykjavík, Helguvík, Vestmannaeyjar og Reyðarfjörð.
  • Þjónusta bláu og gulu leiðarinnar verður óbreytt frá því sem er í dag.
  • Með þessum breytingum er einnig dregið úr álagi á höfnina í Þórshöfn í Færeyjum þar sem stærstum hluta þeirra gáma sem áður var umskipað í Þórshöfn þarf ekki lengur að umskipa þar sem þeir ná nú beinni tengingu á milli hafna.

„Þessar breytingar á siglingakerfi Eimskips koma til með að styrkja kerfið í heild sinni og bæta þjónustuna. Flutningaþarfir viðskiptavina okkar taka sífelldum breytingum, en mikilvægt er fyrir félagið að geta mætt breyttri eftirspurn með því að auka afkastagetu, áreiðanleika og opna fyrir möguleika til vaxtar. Aukin gróska hefur einnig verið víða um land hér á Íslandi og því munum við aftur bjóða upp á vikulegar siglingar um ströndina. Breytingarnar auka enn á vaxtartækifæri Eimskips á markaðssvæði félagsins á Norður-Atlantshafi og fram undan er uppbygging á hafnarsvæðum í Reykjavík, Þórshöfn í Færeyjum og Nuuk á Grænlandi sem gefa mun færi á notkun stærri skipa á svæðinu, en stærri skip munu leiða til hagkvæmari og umhverfisvænni flutninga,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipa.​

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »