BBC fjallar um sjómannaverkfallið

Fiskmarkaðurinn í Grimsby er einn sá stærsti í Bretlandi en …
Fiskmarkaðurinn í Grimsby er einn sá stærsti í Bretlandi en yfirleitt koma um 75% fisksins sem þar er á markaði frá Íslandi. /AFP

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins fjallar í dag um áhrif sjómannaverkfallsins á Íslandi á fiskmarkaðinn í Bretlandi. Martyn Boyers, framkvæmdastjóri Grimsby Fish Dock Enterprises, segir að til greina komi að grípa til frekari uppsagna en einnig er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Fiskmarkaðurinn í Grimsby er einn sá stærsti í Bretlandi en yfirleitt koma um 75% fisksins sem þar er á markaði frá Íslandi. Nú sé þó algengara að sjá aðeins um 100 kassa af þorski frá Íslandi í stað þúsund eins og venjulega að því er segir í frétt BBC.

„Þegar stór birgðasali eins og Ísland allt í einu staðnar þýðir það að fólk verður að leita að fiski annars staðar, það síðan í kjölfarið þrýstir á verðið,“ segir Boyers í samtali við BBC.

„En í öllum tilfellum, og sérstaklega á fiskmarkaði Grimsby, eru viðskipti bundin magni svo við þörfnumst ákveðins magns fisks og það er það sem okkur hefur vantað og við höfum þurft að grípa til ráðstafana.“ Þær ráðstafanir segir Boyers vissulega felast í því að segja upp starfsfólki.

Íslenskir sjómenn hófu verkfall í desember og hafa áhrif þess teygt anga sína víða. Meðal annars hafa kaupmenn átt í erfiðleikum með að nálgast allan þann fisk sem þeir óska og það ekki síður í Bretlandi. Þá segir í frétt BBC að veitingamenn í Grimsby hafi neyðst til að breyta matseðlum sínum til að bregðast við skortinum.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »