Sextánfalda loðnukvótann

Loðnukvótinn hefur verið sextánfaldaður eftir nýjar rannsóknir Hafrannsóknarstofnunar.
Loðnukvótinn hefur verið sextánfaldaður eftir nýjar rannsóknir Hafrannsóknarstofnunar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sjávarútvegsráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknastofnunar ákveðið að auka heildarafla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 tonn á þessari vertíð. Áætlað heildarverðmæti loðnuaflans er um 17 milljarðar króna.

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þúsund tonnum þannig að aukningin er rúmlega sextánföld, að því er segir í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða verður 5,3% aflans úthlutað á skiptimarkaði, alls 10.392 tonnum.

Loðnustofninn stærri

Hafrannsóknastofnun segir í tilkynningu, að eins og kunnugt sé hafi mælingar á loðnustofninum í september/október 2016 bent til þess að veiðistofninn á vertíðinni 2016/2017 væri lítill og í samræmi við samþykkta aflareglu hafi verið ákveðið að engar veiðar yrðu stundaðar nema mælingar í janúar/febrúar 2017 gæfu tilefni til endurskoðunar.

Hafrannsóknastofnun segir ennfremur, að mælingar á stærð loðnustofnsins 11.-20. janúar hafi sýnt að stofninn sé töluvert stærri en mælingar haustsins hafi bent til og ráðlagði Hafrannsóknastofnun hinn 25. janúar að heildaraflamark vertíðarinnar yrði 57 þús. tonn.

Magn kynþroska loðnu umtalsvert meira en í janúar

„Í samvinnu við útgerðir loðnuskipa var ákveðið að mæla að nýju stærð stofnsins og fylgjast með göngum hans fyrir Norður- og Austurlandi. Fóru mælingarnar fram dagana 3.–11. febrúar á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni ásamt uppsjávarskipinu Polar Amaroq en auk þess kom rs. Bjarni Sæmundsson að rannsókninni í 2 daga.

Rannsóknasvæðið náði yfir Austfjarðamið, Norðurmið sem og Vestfjarðamið. Kynþroska loðna fannst víða á rannsóknasvæðinu (mynd 1) og var hún bæði við landgrunnsbrúnina djúpt út af Norður- og Norðausturlandi en einnig var loðnu að finna grunnt s.s. norður af Þistilfirði og Melrakkasléttu en einnig við Skagafjörð. Magn kynþroska loðnu sem mældist var umtalsvert meira en í janúar og meðalþyngd mikil.  Ókynþroska loðna var mest áberandi vestarlega, eða út af Strandagrunni, en austan við Kolbeinseyjarhrygg var mjög lítið af ókynþroska loðnu,“ segir í tilkynningu Hafró.

Heildaraflamarkið 299.000 tonn

„Um 815 þúsund tonn af kynþroska loðnu mældust í mælingunni og mæliskekkja (CV) var metin 0,18.  Gildandi aflaregla byggist á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats í mælingunum auk þess sem afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu er metið. Í samræmi við ofangreinda aflareglu leggur Hafrannsóknastofnun til að heildaraflamark á vertíðinni 2016/2017 verði 299 þúsund tonn,“ segir Hafró ennfremur.

Nú hefur sjávarútvegsráðherra ákveðið að heildarafli Íslands á loðnu verði aukinn í 196.000 tonn, sem fyrr segir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,75 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,21 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,65 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,75 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,21 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,65 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »