Greiða 2,3 milljarða á ári í fæðispeninga

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Samkvæmt lauslegu mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins er heildarkostnaður útgerðarinnar vegna greiðslu fæðispeninga sjómanna á fiskiskipum um 2,3 milljarðar króna á ári miðað við gildandi kjarasamninga. Er þá miðað við að fjöldi  lögskráningardaga sjómanna sé 1,5-1,6 milljónir daga á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag. Áætlað tekjutap ríkisins af þeirri fjárhæð, yrði hún undanþegin skatti, er  u.þ.b. 730  milljónir króna á ári, en því til viðbótar myndu sveitarfélögin tapa u.þ.b. 330 milljónum króna í útsvarstekjum.

Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins sem vildi að gefnu tilefni árétta ákveðin atriði varðandi skattlagningu fæðispeninga og dagpeninga.

Bent er á að sjómenn fái greidda fæðispeninga samkvæmt kjarasamningum og eru þeir breytilegir eftir stærð skipa. Þeir greiða tekjuskatt og útsvar af reiknuðum fæðispeningum, sem eru skilgreindir sem sérstök hlunnindi. Fæðispeningar eru frádráttarbær rekstrarkostnaður hjá útgerðinni og af þeim er greitt tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.

Þá eru dagpeningagreiðslur miðaðar við að verja þurfi dagpeningum að fullu til uppihalds, þ.m.t. kostnaðar vegna fæðis. Það er síðan skattyfirvalda að meta hvort á móti þessum dagpeningum standi nægilega há útgjöld með hliðsjón af árlegu skattmati.

Almennt háttar svo um aðra launþega að þeir borga fyrir fæði sem vinnuveitandi tryggir þeim, t.a.m. í mötuneytum, með tekjum sem þegar hafa verið skattlagðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,51 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,15 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 1.967 kg
Ýsa 1.209 kg
Steinbítur 816 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 4.006 kg
23.4.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 305 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 308 kg
23.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 1.151 kg
Þorskur 363 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.524 kg
23.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Þorskur 1.664 kg
Samtals 1.664 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,51 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,15 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 1.967 kg
Ýsa 1.209 kg
Steinbítur 816 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 4.006 kg
23.4.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 305 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 308 kg
23.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 1.151 kg
Þorskur 363 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.524 kg
23.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Þorskur 1.664 kg
Samtals 1.664 kg

Skoða allar landanir »