Sjómenn funduðu með ráðherra

Fulltrúar samninganefndar sjómanna ganga út úr sjávarútvegsráðuneytinu upp úr klukkan …
Fulltrúar samninganefndar sjómanna ganga út úr sjávarútvegsráðuneytinu upp úr klukkan tíu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fulltrúar Samninganefndar sjómanna gengu út af fundi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra laust upp úr klukkan tíu í kvöld. Fundurinn fór fram í sjávarútvegsráðuneytinu við Skúlagötu. Vildu þeir ekki tjá sig við blaðamenn mbl.is sem voru á vettvangi um hvað fram fór á fundinum.

Fulltrúar deiluaðila funduðu einnig í ráðuneytinu í gærkvöld og kváðust þá ekki heldur vilja tjá sig við fjölmiðla vegna gildandi fjölmiðlabanns í kjaradeilunni.

Guðmundur Kristján Jónsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, staðfesti í samtali við mbl.is að ráðherra hafi rætt málin með fulltrúum sjómanna í kvöld en segir ekkert nýtt hafa í raun komið fram á fundinum, heldur hafi fólk aðeins verið að ræða málin og þá tillögu sem ráðherra bar upp í gær um að stjórnvöld geri grein­ingu á fjár­hags­leg­um af­leiðing­um þess ef gengið yrði að kröf­um sjó­manna um skatta­afslátt af fæðis­gjaldi. 

Þorgerður Katrín hefur sjálf ekki gefið færi á viðtali í kvöld. 

Samið hef­ur verið um öll mál í kjara­deil­u sjó­manna og út­gerðar­inn­ar nema um eitt atriði, það er varðar mögu­leg­an skatta­af­slátt af fæðis­pen­ing­um sjó­manna. 

Samninganefnd SFS hefur fundað og rætt málin í sínum húsakynnum í kvöld og bjóst Jens Garðar Helga­son, formaður SFS, við því þegar hann ræddi við mbl.is fyrr í kvöld, að samninganefnd þeirra myndi heyra í samninganefnd sjómanna seinna í kvöld

Í samtali við mbl.is fyrr í kvöld sagði Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari að ekki hafi verið boðað til sáttafundar né heldur tekin ákvörðun um hvenær svo verður. „Ég bara met það jafnóðum en það er ekki búið að ákveða neitt og ekkert víst að það verði í kvöld eða mögulega á morgun, ég bara veit það ekki enn þá,“ sagði Bryndís. „Ég er í góðu og reglulegu sambandi við aðila og muni bara meta það klukkutíma fyrir klukkutíma hvort það sé tilefni til að funda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »