25 milljónir verða 15 milljarðar

Um borð í Beiti NK á loðnumiðunum í dag.
Um borð í Beiti NK á loðnumiðunum í dag. Ljósmynd/Sigurjón M. Jónuson

Loðnukvótinn sem var sextánfaldaður á dögunum hefði líklega staðið óhreyfður ef útgerðir loðnuskipa hefðu ekki kostað síðari leit Hafrannsóknastofnunar. Þetta kemur fram í fréttabréfi Síldarvinnslunnar. 

Í fréttabréfinu segir að mælingin sem fyrsta úthlutun kvótans byggði á væri þó álitin óviss þar sem slæmt veður og hafís höfðu truflað loðnuleitina verulega. 

Ráðist var í nýjar mælingar dagana 3.-11. febrúar sem útgerðir loðnuskipa greiddu 25 milljónir fyrir. Sú leit skilaði talsvert jákvæðari niðurstöðum og leiddi til þess að sjávarútvegsráðherra ákvað að sextánfalda heildarkvótann. 

„Útgerðir loðnuskipanna eiga heiður skilinn fyrir að kosta síðari leitina, sem hefði sennilega aldrei verið farin ef þær hefðu ekki tekið ákvörðun um að greiða þær 25 milljónir sem þurfti. Síðari leitin leiddi til þess að nú fáum við loðnuvertíð sem skapar sennilega 16 milljarða í verðmæti í staðinn fyrir 1 milljarð eða tæplega það,“ er haft eftir Þorsteini Sigurðssyni, fiskifræðingi hjá Hafrannsóknastofnun. Sjóferðin gæti því á endanum skilað tekjum upp á 15 milljarða fyrir útgerðir og þjóðarbú. 

Norsk skip, sem verið hafa að veiðum við landið, hafa landað töluverðri loðnu. Þegar hafa veiðst 54 þúsund tonn og því aðeins fimm þúsund tonn eft­ir af kvóta þeirra í ís­lenskri land­helgi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »