„Þetta er bara stór og feit loðna“

Beitir NK.
Beitir NK. Ljósmynd/Síldarvinnslan

„Við erum búnir að taka eitt kast. Þetta byrjar helvíti vel, fengum þúsund tonn í fyrsta kastinu,“ segir Tómas Kárason, skipstjóri á nóta- og togveiðiskipinu Beiti NK sem gert er út af Síldarvinnslunni í Neskaupstað, en skipið er við loðnuveiðar út af Breiðamerkursandi ásamt fleiri uppsjávarskipum. Fiskiskipaflotinn lagði úr höfn í gær í kjölfar þess að samningar náðust í kjaradeilu sjómanna og er nú reynt að bjarga loðnuvertíðinni.

„Þetta er bara stór og feit loðna, átulaus,“ segir Tómas aðspurður. „Það er náttúrulega liðið nokkuð. Það hefði verið ágætt að byrja svolítið fyrr en það er eins og það er.“ Beitir NK getur lestað um 3.200 tonn. Sigurður VE frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum er einnig á sömu slóðum og var tiltölulega nýkominn á staðinn og byrjaðir að kasta þegar mbl.is heyrði í áhöfninni. Sögðu þeir veiðar ganga vel hjá þeim skipum sem fyrir voru á staðnum.

„Það gengur bara vel. Við erum með fyrsta kast og þetta er bara mjög góður afli,“ segir Ólafur Einarsson, skipstjóri á Heimaey VE. Spurður hverju fyrsta kast hafi skilað segir hann: „Ja, ég er bara enn að dæla. Ég hugsa að þetta séu um 1.200 tonn.“ Aðspurður segir hann loðnuna líta vel út. 

Fleiri uppsjávarskip eru einnig á staðnum. Þar á meðal Börkur NK frá Síldarvinnslunni, Aðalsteinn Jónsson SU frá Eskju, Vilhelm Þorsteinsson EA frá Samherja og Kap VE frá Vinnslustöðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,66 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,66 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »