Hefði mátt ganga betur í grálúðunni

Frystitogarinn Örfirisey.
Frystitogarinn Örfirisey. mbl.is/Þorgeir Baldursson

„Við höfum svo til eingöngu haldið okkur á djúpslóð allan túrinn og leitin hefur fyrst og fremst beinst að djúpkarfa. Það er góð spurn eftir honum um þessar mundir. Veiðin hefur gengið ágætlega og við stefnum að því að koma til hafnar í Reykjavík nk. mánudag,“ er haft eftir Ævari Jóhannessyni, skipstjóra á frystitogaranum Örfirisey RE, á vef HB Granda.

Rætt var við Ævar nú síðdegis, en Örfirisey fór í veiðiferðina fljótlega eftir að sjómannaverkfallinu lauk fyrir mánuði og hefur skipið komið einu sinni inn til millilöndunar á þeim tíma.

Aflinn upp úr sjó í veiðiferðinni var í dag orðinn um 760 tonn og hann sagðist því reikna með því að heildartalan yrði ríflega 800 tonn þegar siglt yrði til hafnar.

„Við byrjuðum túrinn á Eldeyjarbankanum fljótlega eftir að loðnan var gengin þar yfir og þar fengum við stóran og góðan þorsk. Í framhaldinu færðum við okkur út í Skerjadjúpið þar sem leitað var að djúpkarfa. Aflabrögðin voru góð en auk djúpkarfa var aflinn gulllax og dálítið af ufsa,“ segir Ævar.

Á höttunum eftir djúpkarfa og gulllaxi

Togarinn var síðdegis í dag kominn á svæðið djúpt vestur af Látrabjargi.

„Það brældi syðra og við færðum okkur því hingað norður eftir. Sem fyrr eru það djúpkarfi og gulllax, sem við erum á höttunum eftir, en einnig grálúða. Það hefði reyndar mátt ganga betur á grálúðuveiðunum en það er eins og göngurnar eða ætið vanti. Hitaskil eru hér úti um allt og við erum búnir að draga eftir þeim. Við áttum von á meiru, til dæmis út af Hampiðjutorginu, en það gekk ekki eftir.

Svipaða sögu er að segja af grálúðuveiðum víðar. Höfrungur III AK byrjaði til dæmis í Seyðisfjarðardjúpinu eftir verkfall og fékk þá góðan grálúðuafla í fyrstu holunum. Síðan tregaðist aflinn og mér skilst á skipstjórum annarra skipa að það sé lítið af grálúðu að hafa fyrir austan um þessar mundir. Svo er það norðurkanturinn en þar hefur lengst af verið ótíð,“ segir Ævar, sem kvartar þó ekki undan veðráttunni.

„Við höfum reyndar verið mest á suðurmiðum en það hefur ekki einn einasti dagur fallið úr hjá okkur á veiðum í þessum túr. Það er ekki oft sem það gerist í febrúar og mars.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 252,99 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 252,99 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »