Loðnukvótinn á þrotum

Víkingur AK 100 á loðnuveiðum.
Víkingur AK 100 á loðnuveiðum. mbl.is/Jón Sigurðarson

Fá skip eru á loðnuveiðum þessa dagana enda er loðnukvótinn á þrotum og loðnan fyrir vestan land byrjuð að hrygna eða komin fast að hrygningu. Uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS og Víkingur AK, eru bæði í heimahöfn með afla en til stendur að að minnsta kosti Víkingur fari eina veiðiferð til viðbótar.

Þetta kemur fram á vef HB Granda.

Segir þar að Víkingur hafi komið til hafnar á Akranesi um hádegisbil í gær með um 1.600 tonna afla sem fékkst í mörgum köstum, að sögn Alberts Sveinssonar skipstjóra.

„Það lóðaði lítið en loðnan sem fékkst var blönduð, bæði hængur og hrygna. Mér skilst að það hafi verið ágætis veiði eftir að við fórum af miðunum í gær og vonandi verður svo þegar við förum út eftir löndun,“ sagði Albert Sveinsson.

Venus er á Vopnafirði en þangað kom skipið laust upp úr miðnætti í nótt með um 2.400 tonna afla.

„Við fengum þennan afla fyrir vestan utan hvað við tókum eitt kast úti fyrir Skagafirði á siglingunni hingað austur. Við fengum um 200 til 300 tonn í því kasti. Loðnan var svipuð og sú fyrir vestan að því undanskildu að hrognafyllingin var töluvert minni,“ sagði Guðlaugur Jónsson skipstjóri.

Hann sagði að löndun lyki væntanlega ekki fyrr en annað kvöld, en framhaldið væri óráðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »