Ýtt undir notkun á endurnýjanlegri orku

Jón Már Jónsson, formaður FÍF, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, …
Jón Már Jónsson, formaður FÍF, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifuðu undir yfirlýsinguna í hinu nýuppgerða Marshall-húsi við Grandagarð í Reykjavík í dag.

Landsvirkjun og Félag íslenskra fiskmjölsframleiðenda (FÍF) hafa tekið höndum saman um að stuðla að aukinni notkun endurnýjanlegrar orku í fiskmjölsiðnaði.

Fiskmjölsframleiðendur hafa á undanförnum árum notast bæði við olíu og rafmagn í framleiðslu sinni, en þeir hafa keypt skerðanlegt rafmagn af raforkusölum sem Landsvirkjun hefur selt á heildsölumarkaði. Takmarkað framboð á slíku rafmagni og sveiflukennd eftirspurn hjá fiskmjölsframleiðendum hefur gert að verkum að olía hefur verið nauðsynlegur varaaflgjafi í mjölvinnslunni og komið í stað rafmagns þegar á hefur þurft að halda.

Með viljayfirlýsingu sem Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Jón Már Jónsson, formaður FÍF, skrifuðu undir í dag er markmiðið að gera fiskmjölsframleiðslu enn umhverfisvænni með því að ýta undir notkun rafmagns við vinnsluna, draga þar með úr losun koltvísýrings og styðja um leið við markmið Parísarsamkomulagsins og skuldbindingar Íslands samkvæmt því. 

Skrifað var undir yfirlýsinguna í hinu nýuppgerða Marshall-húsi við Grandagarð í Reykjavík en húsið var upphaflega byggt sem síldarbræðsla og gegndi því hlutverki í um hálfa öld.

Aukin notkun og vöruframboð til lengri tíma

Landsvirkjun lýsir því yfir að fyrirtækið muni á næstu árum stuðla eins og hægt er að auknu framboði á skerðanlegu rafmagni á heildsölumarkaði, sem mun væntanlega standa fiskmjölsframleiðendum til boða sem og öðrum sem uppfylla skilyrði Landsvirkjunar til kaupa á slíku rafmagni. Framboðið ræðst hins vegar af aðstæðum í vatnsbúskapnum hverju sinni og getur því sætt takmörkunum vegna vatns- eða aflskorts. Olíu þarf því að nota áfram sem varaaflgjafa við fiskmjölsframleiðsluna, komi til skerðingar á afhendingu.

Um leið ætlar FÍF að stuðla að því að félagsmenn horfi til þess að gera mjölframleiðsluna enn umhverfisvænni og noti endurnýjanlega orkugjafa í stað annarra mengandi orkugjafa. Stefnir FÍF að því að félagsmenn noti skerðanlegt rafmagn eins mikið og framboð og flutningar á slíku rafmagni leyfa.

Nú eru um 75 prósent af orkuþörf fiskmjölsverksmiðja rafvædd og talið er raunhæft að það hlutfall geti farið upp í um 85 prósent. Til þess að ná fullri rafvæðingu þarf hins vegar að koma til veruleg fjárfesting í flutningskerfi raforku í landinu.

Aukinn hvati til rafvæðingar

Í kjölfar yfirlýsingarinnar stefnir Landsvirkjun jafnframt að því að bjóða þeim sem nota skerðanlegt rafmagn samninga á samkeppnishæfum kjörum til lengri tíma en verið hefur, eða frá undirritun og allt til septemberloka 2019. Með því er ætlunin að stuðla að því að hvati skapist fyrir fiskmjölsverksmiðjur sem ekki eru þegar rafvæddar til að ráðast í þá fjárfestingu sem til þarf. Á móti skuldbindi verksmiðjurnar sig til að kaupa skerðanlegt rafmagn burtséð frá verðþróun annarra orkugjafa.

Öðrum kaupendum rafmagns sem nú nýta mengandi orkugjafa og uppfylla skilmála Landsvirkjunar um uppsett afl stendur einnig til boða að kaupa skerðanlegt rafmagn af þessari gerð, í gegnum sölufyrirtæki raforku. Náist ekki markmið viljayfirlýsingarinnar á næstu 12 mánuðum verða hún og markmið hennar endurskoðuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 499,79 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 198,06 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,91 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Norðurljós NS 40 Grásleppunet
Grásleppa 2.261 kg
Þorskur 394 kg
Ýsa 238 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 2.899 kg
18.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.081 kg
Þorskur 126 kg
Rauðmagi 56 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 2.289 kg
18.4.24 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 9.568 kg
Skarkoli 6.191 kg
Þorskur 332 kg
Grásleppa 133 kg
Ýsa 133 kg
Þykkvalúra 92 kg
Samtals 16.449 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 499,79 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 198,06 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,91 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Norðurljós NS 40 Grásleppunet
Grásleppa 2.261 kg
Þorskur 394 kg
Ýsa 238 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 2.899 kg
18.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.081 kg
Þorskur 126 kg
Rauðmagi 56 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 2.289 kg
18.4.24 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 9.568 kg
Skarkoli 6.191 kg
Þorskur 332 kg
Grásleppa 133 kg
Ýsa 133 kg
Þykkvalúra 92 kg
Samtals 16.449 kg

Skoða allar landanir »