Fullfermi eftir hrygningarstopp

Vestmannaey VE og Bergey VE héldu til veiða á föstudagsmorguninn að loknu hrygningarstoppi og hófst veiðin strax af krafti að því er segir á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Voru bæði skip komin til löndunar í Vestmannaeyjum daginn eftir með nánast fullfermi. Skipin lönduðu síðan fullfermi aftur í morgun og var uppistaða aflans ýsa og þorskur.

Léleg aflabrögð hafa hins vegar verið hjá togurunum á Austfjarðamiðum að undanförnu og hafa austfirsku togarnir því leitað á fjarlægari mið.

„Gullver NS hefur verið að veiðum fyrir sunnan land og er nú á leið til Seyðisfjarðar með fullfermi. Barði NK hefur verið á Vestfjarðamiðum og landaði fullfermi á Dalvík í gærkvöldi. Uppistaða afla Barða var þorskur og ufsi. Blængur NK hefur að undanförnu veitt ufsa á Halamiðum og hafa aflabrögðin verið góð,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »