Matvælastofnun bregst við laxalús

Matvælastofnun.
Matvælastofnun. mbl.is/Sigurður Bogi

Matvælastofnun hefur samþykkt umsókn um lyfjameðhöndlun til varnar laxalús í sjókvíum í einni eldisstöð í Arnarfirði.

Í tilkynningu frá stofnuninni segir að meira hafi verið af laxalús að undanförnu en í hefðbundnu árferði vegna mikilla hlýinda í vetur. Aðgerðirnar miða að því að fyrirbyggja uppsöfnun laxalúsar í sumar. Þetta er í fyrsta sinn frá því á níunda áratugnum sem gripið hefur verið til lyfjameðhöndlunar gegn laxalús á Íslandi.

Lúsatalningar einnar sjókvíaeldisstöðvar í Arnarfirði í vor sýndu aukið magn af laxalús. Í vetur hafa aðstæður í sjó verið óvenjulegar vegna mikilla hlýinda. Sem dæmi var meðalhiti sjávar í Arnarfirði 3,5°C í febrúar á þessu ári en 1,5°C á sama tíma í fyrra.

„Matvælastofnun fór í eftirlit á stöðinni eftir að stofnuninni bárust þessar upplýsingar, ásamt beiðni stöðvarinnar um að fá að meðhöndla fiskinn í stöðinni gegn laxalús. Stofnunin mat ástandið þannig að tilefni væri til að grípa inn í og fyrirbyggja að smitið nái að magnast upp með hækkandi sumarhita. Skoðun á eldisfiski staðfesti að lúsin kom sterk undan vetri en að fiskurinn væri heilbrigður og hraustur að öðru leyti. Því var ákveðið að fiskur í stöðinni yrði meðhöndlaður til varnar frekara lúsasmiti,“ segir í tilkynningunni.

„Með þessari fyrirbyggjandi aðgerð nást góðar aðstæður fyrir þau seiði sem fara í kvíar í vor og einungis verður eftir hið náttúrulega smitálag, sem fylgir villtum sjóbirtingi sem gengur í og um Arnarfjörð. Einnig er komið í veg fyrir að lúsin nái sér á strik í sumar og geta rekstraraðilar þá beitt öðrum forvörnum, eins og ráðgert hefur verið, þ.á.m. hrognkelsum sem éta lús.“

Fram kemur að laxalús teljist til náttúruleg umhverfis fiska í sjókvíaeldi og til villtra laxfiska. Vandamál tengd henni hafa ekki verið til staðar hérlendis enda hafa aðstæður ekki verið hagstæðar henni til vaxtar og fjölgunar.

„Íslensk löggjöf gerir hvorki kröfu um vöktun né talningu á lús en gerð er krafa um lúsatalningu í gæðavottunum sem flest sjókvíaeldisfyrirtæki hafa sótt um. Árið 2014 hófst vinna hjá Matvælastofnun við að útbúa leiðbeiningar um vöktun á lús. Leiðbeiningarnar eru í mótun en þær hafa það að markmiði að samræma verklag við talningu til að tryggja velferð fisks við framkvæmdina og samkvæmt þeim skal talningum skilað til Matvælastofnunar. Með vaxandi hitastigi sjávar þarf að vera á varðbergi gagnvart laxalús og fylgist stofnunin áfram með þróun mála.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,31 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,59 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Rauðmagi 29 kg
Þorskur 21 kg
Samtals 50 kg
25.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.443 kg
Þorskur 473 kg
Ýsa 113 kg
Skarkoli 60 kg
Samtals 2.089 kg
25.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 671 kg
Samtals 671 kg
25.4.24 Sæfari BA 110 Grásleppunet
Grásleppa 3.470 kg
Þorskur 109 kg
Skarkoli 63 kg
Steinbítur 29 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 3.691 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,31 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,59 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Rauðmagi 29 kg
Þorskur 21 kg
Samtals 50 kg
25.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.443 kg
Þorskur 473 kg
Ýsa 113 kg
Skarkoli 60 kg
Samtals 2.089 kg
25.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 671 kg
Samtals 671 kg
25.4.24 Sæfari BA 110 Grásleppunet
Grásleppa 3.470 kg
Þorskur 109 kg
Skarkoli 63 kg
Steinbítur 29 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 3.691 kg

Skoða allar landanir »