„Viðbrögð starfsmanna voru hárrétt, að mínu mati, enda er aldrei of varlega farið þegar eldur er annars vegar,“ segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri í fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði þar sem eldur kom upp í reykröri í morgun. „Slökkviliðsstjórinn mat það þannig á leiðinni að rétt væri að kalla einnig út slökkvilið frá Þórshöfn og Egilsstöðum en það kom fljótlega í ljós að það var sem betur fer ekki þörf fyrir þann liðsstyrk.“
Haft er eftir Sveinbirni í frétt á vef HB Granda að reykrör, sem liggur frá þurrkara í verksmiðjunni, var opnað til að þrífa það. „Við það hljóp neisti frá slípirokki í mjölleifar sem voru í rörinu og staðbundinn eldur kom upp. Okkar fyrstu viðbrögð voru að útiloka að súrefni kæmist að eldinum og síðan var hann slökktur með vatni.“
Sveinbjörn segir að dagana á undan hafi orðið vart við ákveðna tregðu í loftflæði um reykrörið og því hafi tækifærið verið notað til að opna rörið um leið og verksmiðjan var þrifin.
„Það var lokið við að vinna kolmunna í verksmiðjunni í gærmorgun. Við þrífum verksmiðjuna hátt og lágt þegar hlé verður á vinnslunni og það voru slík þrif í gangi þegar eldurinn kom upp í mjög takmörkuðu rými. Það gerðist upp úr klukkan átta í morgun og slökkviliðið var farið héðan kl. 10.30,“ segir Sveinbjörn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 454,87 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 531,95 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 230,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 180,22 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 179,98 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.138 kg |
Þorskur | 89 kg |
Samtals | 1.227 kg |
23.4.24 Brimsvala SH 262 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 726 kg |
Samtals | 726 kg |
23.4.24 Þytur MB 10 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 691 kg |
Samtals | 691 kg |
23.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.756 kg |
Þorskur | 60 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.836 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 454,87 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 531,95 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 230,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 180,22 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 179,98 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.138 kg |
Þorskur | 89 kg |
Samtals | 1.227 kg |
23.4.24 Brimsvala SH 262 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 726 kg |
Samtals | 726 kg |
23.4.24 Þytur MB 10 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 691 kg |
Samtals | 691 kg |
23.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.756 kg |
Þorskur | 60 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.836 kg |