Endurnýjar allan ísfisktogaraflotann

Bergey VE, eitt skipanna fjögurra, við bryggju.
Bergey VE, eitt skipanna fjögurra, við bryggju. mbl.is/Sigurður Bogi

Síldarvinnslan hf. hyggst endurnýja allan ísfisktogaraflota sinn. Þetta kom fram á aðalfundi útgerðarinnar sem haldinn var á föstudag. Flotann skipa fjögur skip, Barði NK, Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE. Þegar er hafinn undirbúningur á þessu umfangsmikla verkefni.

„Sem liður í þessari endurnýjun var Bjartur NK seldur á síðasta ári til Íran og um þessar mundir er unnið að sölu á Barða NK til Rússlands. Blængur NK, áður Freri RE, hefur verið endurbyggður sem öflugur frystitogari og var hann tekinn í notkun fyrr á þessu ári,“ er haft eftir Gunnþóri B. Ingvasyni framkvæmdastjóra á vef Síldarvinnslunnar.

„Hvað varðar söluna á Barða þá mun myndast eitthvað tómarúm frá sölunni og þar til nýtt skip kemur og verður leitast við að bjóða sjómönnunum sem lenda í slíku millibilsástandi störf á öðrum skipum félagsins eða í landi auk þess sem aðrar lausnir verða skoðaðar,“ segir Gunnþór.

„Endurnýjun skipa eins og hér um ræðir er stór ákvörðun en stefnan er skýr; fyrirtækið vill vera í fremstu röð hvað varðar hagkvæmni í rekstri, meðhöndlun afla og starfsumhverfi sjómanna. Þetta er metnaðarfullt og ögrandi verkefni sem felur í sér stórt framfaraskref.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »