Víða makríl að finna í þorskinum

Barði NK.
Barði NK. mbl.is/Hákon Ernuson

Togarinn Barði NK kom til löndunar á Seyðisfirði í gærkvöldi með um 90 tonna afla. Haft er eftir Steinþóri Hálfdanarsyni skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar að þorskveiði hafi verið treg á hinum hefðbundnu austfirsku togaramiðum og áberandi sé að fiskurinn sé farinn að gæða sér á makríl.

„Það sést makríll víða í þorski á okkar hefðbundnu miðum og staðreyndin er sú að þorskveiðin gengur illa. Það er að vísu ekki óalgengt að þorskur veiðist ekki hér eystra um þetta leyti árs og það var reyndar þannig áður en makríll varð áberandi á miðunum. Líklega er hann uppi í sjó að éta. Við reyndum fyrir okkur í Hvalbakshallinu, á Fætinum og á Breiðdalsgrunni og það var alls staðar sama sagan.“

Dálítið hafi fengist af þorski út á Þórsbanka um tíma en svo hafi hann horfið líka. „Það hefur verið töluvert um kolmunna á þessum slóðum en nú virðist þorskurinn ekki líta við honum, hann virðist hins vegar gráðugur í makrílinn – það er líklega veisla hjá honum. Mér þætti ekki ósennilegt að við færum vestur í næsta túr á meðan ástandið er svona hér eystra. En þetta ástand getur síðan breyst á örskammri stundu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »