Barði NK seldur til Rússlands

Barði NK siglir út Norðfjörð í síðasta sinn.
Barði NK siglir út Norðfjörð í síðasta sinn. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Húnbogi Sólon

Togarinn Barði NK 120 hefur verið seldur fyrirtæki í Murmansk í Rússlandi. Nokkrir Rússar hafa verið í Neskaupstað síðustu daga til að taka á móti skipinu. Barði sigldi síðan á brott frá Neskaupstað í dag, segir í frétt Síldarvinnslunnar.

Haft er eftir Rinat Ulyukaev, hinum rússneska skipstjóra skipsins, að ferðinni sé fyrst heitið til Kirkenes í Norður-Noregi en þar verður vinnslubúnaði komið fyrir um borð. Síðan er gert ráð fyrir að haldið verði til rækjuveiða. Annars sagði rússneski skipstjórinn að gert væri ráð fyrir að skipið myndi fiska víða í norðurhöfum í framtíðinni.

Togarinn Barði var smíðaður í Flekkefjord í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði árið 1989 og bar upphaflega nafnið Snæfugl. Skipaklettur hf. og Síldarvinnslan sameinuðust árið 2001. Um tíma var skipið leigt skosku útgerðarfyrirtæki og bar þá nafnið Norma Mary en haustið 2002 hóf Síldarvinnslan að gera það út og fékk það þá nafnið Barði. Síldarvinnslan gerði Barða fyrst út sem frysti- og ísfiskskip en síðar var megináhersla lögð á að frysta aflann um borð. Árið 2016 var síðan allur vinnslubúnaður fjarlægður úr Barða og var hann rekinn sem ísfisktogari frá þeim tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,30 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,18 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,41 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.593 kg
Þorskur 132 kg
Skarkoli 89 kg
Ufsi 22 kg
Steinbítur 12 kg
Samtals 1.848 kg
25.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 1.552 kg
Þorskur 189 kg
Ufsi 46 kg
Samtals 1.787 kg
25.4.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 7.829 kg
Samtals 7.829 kg
25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,30 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,18 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,41 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.593 kg
Þorskur 132 kg
Skarkoli 89 kg
Ufsi 22 kg
Steinbítur 12 kg
Samtals 1.848 kg
25.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 1.552 kg
Þorskur 189 kg
Ufsi 46 kg
Samtals 1.787 kg
25.4.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 7.829 kg
Samtals 7.829 kg
25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg

Skoða allar landanir »