Smíðar báta fyrir fiskeldi

Hraðbátarnir eru sérstaklega hugsaðir fyrir fiskeldi.
Hraðbátarnir eru sérstaklega hugsaðir fyrir fiskeldi. Ljósmynd/Gauti Jóhannesson

„Áhugi á fiskeldi er að aukast, það vantar báta sem eru fljótari í förum en tvíbytnurnar,“ segir Vilhjálmur B. Benediktsson, framkvæmdastjóri Pípulagningarþjónustu Vilhjálms og Axels og Bátasmiðjunnar Ránar á Djúpavogi. Bátasmiðjan er að þróa harðbotna hraðbáta af mismunandi stærðum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir fiskeldið. Þrír bátar hafa verið afhentir og sá fjórði og stærsti, rúmlega níu metra bátur, er langt kominn.

Vilhálmur hefur unnið að því að sjóða saman sjókvíar í fimmtán ár. Það hófst með því að stór framleiðandi, Aqualine í Þrándheimi, fól fyrirtækinu að setja saman eldiskvíar í Noregi á árinu 2002. Síðan hefur fyrirtækið verið með mikil verkefni fyrir Aqualine, mest í Noregi en einnig víðar um Evrópu og allt suður til Tasmaníu í Eyjaálfu. Einstaka verkefni hafa verið við sjókvíar hér á landi, þegar sjókvíafyrirtæki hafa keypt búnað frá þessu fyrirtæki. Fram undan eru verkefni í Ástralíu og víðar.

Vilhjálmur er með sjö menn fast í sjókvíasamsetningum, við bætast afleysingamenn og skrifstofumaður hér heima. Þeir byrja í janúar og vinna fram á haust.

Vilhjálmur segir þróun báts þarfnast bæði vinnu og þolinmæði.
Vilhjálmur segir þróun báts þarfnast bæði vinnu og þolinmæði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Ekkert lát á uppbyggingu

„Mikil uppbygging er í eldi í Noregi, það virðist ekkert lát vera á því. Mest eru þetta nýjar stöðvar en einnig endurnýjun á eldri. Sjókvíarnar verða sífellt stærri og öflugri,“ segir Vilhjálmur.

Talsverð umræða hefur verið um hættuna á því að lax sleppi úr kvíum, í tengslum við uppbyggingu sjókvíaeldis hér á landi. Vilhjálmur bendir á að hringirnir séu mjög öflugir. Nótin sem haldi fiskinum innan kvíanna sé veiki hlekkurinn en alltaf sé verið að bæta þann búnað einnig.

„Ég hef hitt marga fiskeldismenn en veit ekki um neinn sem ekki leggur áherslu á að hafa hlutina í lagi,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að fiskeldismenn í Noregi taki ábyrgð sína alvarlega. Enginn vilji missa fisk og komast um leið í brennidepil hjá náttúruverndarfólki.

Vilhjálmur segir að mikil verkefni skapist í byggðarlögum þar sem fiskeldi byggist upp. „Þetta er hátækniiðnaður með fjölda starfa,“ segir hann.

Þróun báts er þolinmæðisverk

Vilhjálmur hugsaði sér bátasmíðina sem íhlaupavinnu, þegar minna væri að gera við samsetningu eldiskvía úti í Noregi. Notað er að hluta til sama efni og er í eldishringjunum. Hann segir að það kalli á mikla vinnu, þolinmæði og kostnað að þróa nýja gerð af báti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »