2.500 tonn af makríl á vertíðinni

Frystum makríl landað úr Vilhelm Þorsteinssyni EA í dag.
Frystum makríl landað úr Vilhelm Þorsteinssyni EA í dag. Ljósmynd/Húnbogi Sólon

Vilhelm Þorsteinsson EA kom í morgun til Neskaupstaðar með 480 tonn af frystum makríl auk afskurðar og makríls sem flokkaðist frá við vinnsluna og landað var í fiskimjölsverksmiðjuna. Frysta makrílnum var landað í frystigeymslur Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Heimir Ásgeirsson, yfirverkstjóri í frystigeymslunum, segir að með þessum farmi séu komin rúmlega 2.500 tonn af frystum makríl frá vinnsluskipum í frystigeymslurnar á vertíðinni. Vilhelm Þorsteinsson  sé nú að landa í fjórða sinn og að auki hafi Hákon EA landað einu sinni 625 tonnum.  

Heimir segir að í vikunni hafi komið flutningaskip og lestað rúmlega tvö þúsund tonn af frystum afurðum. Hafi farið um borð í skipið blanda af makríl, síld og loðnu.

Bíða spenntir eftir Norðfjarðargöngunum

„Síðan eru frystar afurðir alltaf að fara í gámum í skip á Reyðarfirði þannig að hér er mikið umleikis. Það verður mikil framför þegar ný Norðfjarðargöng verða tekin í notkun í septembermánuði því þá þurfa bílarnir ekki að fara með gámana yfir Oddsskarð, fjallveg sem fer í yfir 600 metra hæð. Bílstjórarnir bíða spenntir eftir göngunum enda mun tilkoma þeirra auðvelda flutningana, stytta ferðatíma og bæta meðferð ökutækjanna. Ný Norðfjarðargöng munu hafa byltingarkennd áhrif,“ segir Heimir.

Bjarni Ólafsson AK kemur til löndunar í gærkvöldi.
Bjarni Ólafsson AK kemur til löndunar í gærkvöldi. Ljósmynd/Húnbogi Sólon

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar með 460 tonn af makríl í gærkvöldi og fer hann allur til vinnslu í fiskiðjuverinu. Gísli Runólfsson skipstjóri segir að aflinn hafi fengist í tveimur holum í Lónsdýpinu og um sé að ræða mjög góðan fisk. Gísli segir að þeir hafi þurft að koma í land fyrr en áætlað var vegna brælu.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »