Aflaverðmæti dróst saman um 12,1%

Góður afli í netaralli. Mynd úr safni.
Góður afli í netaralli. Mynd úr safni. mbl.is/Alfons Finnsson

Afli íslenskra skipa var árið 2016 rúm 1.067 þúsund tonn, 252 þúsund tonnum minni en árið 2015. Aflaverðmæti fyrstu sölu var þá rúmir 133 milljarðar króna og dróst saman um 12,1% frá árinu á undan.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar, en þar segir að þennan samdrátt í aflaverðmæti megi helst rekja til styrkingar krónunnar.

Fram kemur einnig að ríflega 456 þúsund tonn hafi veiðst af botnfiski á síðasta ári, eða 4,7% meira en árið 2015. Þrátt fyrir aukið magn hafi verðmæti botnfisktegunda hins vegar dregist saman á milli ára. Aflaverðmæti úr sjó nam þannig 92,6 milljörðum króna á síðasta ári og dróst saman um 9,9% frá árinu 2015.

„Sem fyrr veiddist mest af uppsjávartegundum, en alls veiddust tæp 575 þúsund tonn árið 2016 sem er samdráttur um 275 þúsund tonn miðað við árið 2015. Munar þar mestu um ríflega 252 þúsund tonna samdrátt í loðnuafla. Verðmæti uppsjávarafla árið 2016 nam rúmum 27,8 milljörðum króna og dróst saman um 19,6% frá árinu 2015 þegar verðmætið nam rúmum 34,6 milljörðum,“ segir á vef Hagstofunnar.

„Tæp 24 þúsund tonn af flatfiski veiddust árið 2016 sem er 1,9% aukning frá fyrra ári. Verðmæti flatfiskafurða nam tæpum 9,1 milljarði króna og dróst saman um 7,9% frá fyrra ári. Af skel- og krabbadýrum veiddust 12,5 þúsund tonn sem er 23,7% meira en árið 2015. Verðmæti skel- og krabbadýraafurða dróst hins vegar saman og nam tæpum 3,5 milljörðum króna samanborið við tæpa 4 milljarða árið 2015.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,49 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 314,23 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,79 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 38 kg
Rauðmagi 3 kg
Steinbítur 3 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.731 kg
19.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 3.982 kg
Steinbítur 1.328 kg
Þorskur 123 kg
Sandkoli 86 kg
Grásleppa 43 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 5.579 kg
19.4.24 Siggi Bjartar ÍS 50 Grásleppunet
Grásleppa 3.507 kg
Þorskur 79 kg
Rauðmagi 41 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 3.638 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,49 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 314,23 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,79 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 38 kg
Rauðmagi 3 kg
Steinbítur 3 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.731 kg
19.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 3.982 kg
Steinbítur 1.328 kg
Þorskur 123 kg
Sandkoli 86 kg
Grásleppa 43 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 5.579 kg
19.4.24 Siggi Bjartar ÍS 50 Grásleppunet
Grásleppa 3.507 kg
Þorskur 79 kg
Rauðmagi 41 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 3.638 kg

Skoða allar landanir »