Skilvirkari uppsetning vörpupoka

Rannsóknarteymið fylgdi áhöfninni á Helgu Maríu.
Rannsóknarteymið fylgdi áhöfninni á Helgu Maríu. Ljósmynd/HB Grandi

Rannsóknarteymi Hampiðjunnar, Hafrannsóknastofnunar og HB Granda hefur grandskoðað nýja uppsetningu á vörpupokum frá Hampiðjunni og komist að því að við karfaveiðar skilar gerðin meiri skilvirkni en hefðbundnir karfavörpupokar.

Þetta kemur fram á vef Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, sem haldin verður dagana 13.-15. september.

Segir þar að rannsóknarteymi Hafrannsóknastofnunar og útvegs- og sjávardeild Memorial-háskóla á Nýfundnalandi hafi fylgt Heimi Guðbjörnssyni skipstjóra og áhöfn ferskfisktogarans Helgu Maríu við karfaveiðar til að meta kjörhæfni T90-vörpupokans.

„Prófaður var búnaður sem samanstóð af vörpupoka úr tvöföldu 6 mm PE-neti með 110 mm möskvastærð með uppsettum QuickLines frá Hampiðjunni. Utan um vörpupokann var sett 500 mm yfirnet til að hindra að fiskur kæmist út úr vörpunni og þannig gátu vísindamennirnir metið samsetningu þess afla sem annars slyppi úr vörpunni,“ segir á vefnum.

Hélst betur á karfa yfir viðmiðunarstærð

Að sögn Haraldar Arnars Einarssonar, verkefnisstjóra rannsóknarinnar hjá Hafrannsóknastofnun, varð niðurstaðan sú að þessi gerð vörpupoka skilaði 7,3 sm betri skilvirkni við að skilja að gullkarfa en hefðbundinn karfavörpupoki með 135 mm tígulmöskvum.

„Jafnvel þótt meira magn af smáum karfa slyppi úr T90-vörpupokanum, kom í ljós að honum hélst betur á karfa yfir viðmiðunarstærðinni 33 sm,“ er haft eftir Haraldi. Bætir hann við að kjörhæfnistuðullinn hafi hækkað mun brattar í T90-vörpupokanum.

Greinilegt væri þá að þessi vörpupoki væri umtalsverð framför með tilliti til bættrar umgengni við auðlindir í hafi. Myndi það skila sér að rannsaka betur magn tálknfisks í vörpupokanum.

HB Grandi fékk undanþágu

Fram kemur einnig að HB Grandi hafi fengið undanþágu til að rannsaka einn ákveðinn vörpupoka samkvæmt þessari tæknilýsingu til að safna gögnum, bæði til að afla sjónrænna upplýsinga og meta fjölda tálknfiska, ásamt því að meta skilvirkni og afköst vörpupokans.

„Við gerum ráð fyrir því að hafa innan fárra mánaða í höndum ýtarlegri upplýsingar um gildi þessa vörpupoka þannig að hægt sé að taka ákvarðanir um frekari notkun hans,“ segir Haraldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 499,72 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 370,09 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 198,06 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,11 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,66 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 69,60 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 929 kg
Steinbítur 310 kg
Sandkoli 23 kg
Samtals 1.262 kg
18.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 688 kg
Þorskur 165 kg
Samtals 853 kg
18.4.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.035 kg
Steinbítur 182 kg
Ufsi 92 kg
Ýsa 32 kg
Hlýri 7 kg
Langa 4 kg
Skarkoli 3 kg
Karfi 2 kg
Samtals 1.357 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 499,72 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 370,09 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 198,06 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,11 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,66 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 69,60 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 929 kg
Steinbítur 310 kg
Sandkoli 23 kg
Samtals 1.262 kg
18.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 688 kg
Þorskur 165 kg
Samtals 853 kg
18.4.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.035 kg
Steinbítur 182 kg
Ufsi 92 kg
Ýsa 32 kg
Hlýri 7 kg
Langa 4 kg
Skarkoli 3 kg
Karfi 2 kg
Samtals 1.357 kg

Skoða allar landanir »