Skiptar skoðanir innan flokkanna

Fiskeldi. Mynd úr safni.
Fiskeldi. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Atvinnuveganefnd hefur ekki borist skýrsla starfshóps um stefnumótun í fiskeldi, að sögn Páls Magnússonar, formanns nefndarinnar.

Sem kunnugt er skipaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, starfshópinn. Hann átti að skila skýrslu um miðjan þennan mánuð. Skýrsluna átti að kynna strax í ríkisstjórn og eins í atvinnuveganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.

Páll kvaðst ekki vita hvort starfshópurinn hafi skilað skýrslunni til ráðherra. Atvinnuveganefnd hafi alla vega ekki enn séð skýrsluna. Nefndin hefur ekki fjallað um áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra íslenskra laxastofna.

„Áhættumat Hafrannsóknastofnunar var unnið fyrir starfshópinn og verður hluti af heildarskýrslunni sem skilað verður til ráðherra,“ sagði Páll. Hann sagði að heildarskýrslan yrði rædd í nefndum Alþingis þegar hún lægi fyrir.

„Þetta mál er býsna erfitt. Það eru uppi margs konar sjónarmið innan stjórnmálaflokkanna um málið og það fer ekki endilega eftir flokkslínum. Ég geri ráð fyrir að þetta verði með viðkvæmari og erfiðari málum sem Alþingi fær til úrlausnar á haustþingi, ekki síst í atvinnuveganefnd,“ sagði Páll.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra mun mæta á fund atvinnuveganefndar á mánudaginn kemur til að ræða stöðu sauðfjárbænda. Stefnumótun í fiskeldi er ekki á dagskrá fundarins. Páll kveðst ekki vita hvort ráðherrann muni nota tækifærið til að kynna fiskeldisskýrsluna á fundinum, enda sé ekki ljóst hvort skýrslan verði tilbúin þá. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »