Veiða grálúðu miðja vegu til Grænlands

Örfirisey.
Örfirisey. mbl.is/Thorgeir Bald

„Við höfum mest verið á höttunum eftir grálúðu og það má segja að leitin að henni hafi gengið vonum framar. Það er vissulega ekki sá kraftur í grálúðuveiðunum sem maður hefði viljað sjá en það fæst þorskur með á slóðinni og það gerir gæfumuninn,“ segir Ævar Jóhannsson skipstjóri frystitogarans Örfirisey RE.

Örfirisey hóf veiðiferðina út af Hampiðjutorginu en þar var dræm grálúðuveiði. „Við höfum síðan fylgt norðurkantinum norður og austur eftir og erum nú staddir djúpt norður af Horni. Héðan eru 40 mílur í miðlínuna milli Íslands og Grænlands og í gær gátum við fylgst með ferðum grænlensks skips sem var á síldveiðum um 70 mílur norður af okkur,“ segir Ævar.

Þar sem skipið er nú satt er helkaldur sjór sem hentar helst fyrir tegundir eins og grálúðu og rækju. „Grálúðan hefur fengist á 230 til 350 faðma dýpi en þar er sjávarhitinn – 0,6 til – 0,8 gráður á selsíus þótt yfirborðshitinn sé vissulega hærri. Þetta er fínasti fiskur. Grálúðan hér er e.t.v. ekki eins stór og menn eiga að venjast á Hampiðjutorginu en stærðin er samt í góðu lagi.“

Að sögn Ævars stefndi frystitogaraflotinn norður í lokað hólf sem opna átti tímabundið kl. 17 síðdegis í gær. „Menn eiga von að fá þarna góða ýsuveiði en það á eftir að koma í ljós hvernig veiðin gengur. Við förum svo væntanlega aftur á Hampiðjutorgið í von um að hitaskil gangi þar yfir svæðið og grálúðan gefi sig til. Við verðum svo með millilöndun í Reykjavík 31. ágúst en veiðiferðinni lýkur formlega 6. september.“

Örfirisey í skipaskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »