Segja sig úr Landssambandi fiskeldisstöðva

Ísafjarðardjúp.
Ísafjarðardjúp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Háafell, fiskeldisfyrirtæki í eigu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. í Hnífsdal (HG), hefur sagt sig úr Landssambandi fiskeldisstöðva (LF) en fyrirtækið hefur verið félagi í samtökunum í rúm 15 ár og fulltrúi þess átt sæti í stjórn samtakanna undanfarin ár. Þetta kemur fram á vef HG:

„Um nokkurt skeið hefur framganga LF fjarlægst þá stefnu og sýn sem Háafell vill byggja á í uppbyggingu fiskeldis á Íslandi. Í síðustu viku skrifuðu fulltrúar LF athugasemdalaust undir stefnumótunarskýrslu í fiskeldi þar sem m.a. er lagt til að áform um uppbyggingu laxeldis í Ísafjarðardjúpi verði slegin út af borðinu og þar með sex ára réttmætar væntingar Háafells, samfélagsins við Djúp og íbúanna að engu hafðar.

Háafell hefur lagt sig sérstaklega fram um að vanda til verka í umsóknarferlinu, uppbyggingaráformin eru varfærin og hugsuð yfir lengri tíma, búið er að fara í gegnum ítarlegt samráðsferli með hagsmunaaðilum og íbúum og leggja til og útfæra mótvægisaðgerðir til þess að lágmarka umhverfisáhrif. Ekki er tekið tillit til ofantalinna þátta í skýrslunni heldur virðist skýrslan fremur vera einhvers konar samkomulag milli stærstu eldisfyrirtækjanna og veiðiréttarhafa. Háafell mun áfram beita sér fyrir því að byggja varsamlega upp laxeldi í Ísafjarðardjúpi samkvæmt ströngum kröfum, í sátt við umhverfið og til hagsbóta fyrir samfélagið.

HG og síðar Háafell hafa stundað farsælt eldi í Ísafjarðardjúpi síðan árið 2002 og verið með umsókn um 7.000 tonna laxeldisleyfi í  stjórnkerfinu síðan 2011. Háafell er eina eldisfyrirtækið sem er alíslenskt og í eigu heimamanna sem vinnur að uppbyggingu laxeldis í sjókvíum við Ísland,“ segir í frétt á vef HG.

Kristján G. Jóakimsson, verkefnastjóri Háafells, segir enn fremur á vef HG: „Það er augljóst að með þessu er ekkert tillit tekið til þeirrar vönduðu og miklu vinnu sem við höfum lagt í á undanförnum árum. Því síður eru hagsmunir íbúa á norðanverðum Vestfjörðum nokkurs metnir. Og það er í raun sorglegt að fólk sem vill bjarga sér sjálft sé svipt þeim möguleika, svo aðrir geti skarað eld að eigin köku.“

Tilkynningin í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 438,43 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,59 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 167,89 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,27 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.274 kg
Þorskur 214 kg
Rauðmagi 23 kg
Skarkoli 1 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 1.513 kg
24.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet
Grásleppa 1.135 kg
Þorskur 241 kg
Ufsi 182 kg
Skarkoli 31 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.598 kg
24.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 702 kg
Karfi 2 kg
Samtals 704 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 438,43 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,59 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 167,89 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,27 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.274 kg
Þorskur 214 kg
Rauðmagi 23 kg
Skarkoli 1 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 1.513 kg
24.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet
Grásleppa 1.135 kg
Þorskur 241 kg
Ufsi 182 kg
Skarkoli 31 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.598 kg
24.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 702 kg
Karfi 2 kg
Samtals 704 kg

Skoða allar landanir »