Mokveiða makríl við Keflavík

Makrílveiðar í Keflavíkurhöfn. Mynd úr safni.
Makrílveiðar í Keflavíkurhöfn. Mynd úr safni.

Hafnarstarfsmenn í Keflavíkurhöfn hafa vart haft undan við að landa makríl úr smábátum Algengt er að menn landi fullfermi nokkrum sinnum yfir daginn.

Að sögn sjómanna á bátunum heldur makríllinn sig nálægt landi við norðanverðan Reykjanesskaga, mest út af Keflavík, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.

Segir þar að úti fyrir Snæfellsnesi sé einnig góð veiði. Þar sé hegðun makrílsins svipuð, hann haldi sig nálægt landi. Besta veiðin þar hafi þá verið út frá Rifi af Öndverðarnesi.

„Þriðja veiðisvæði smábáta er í Steingrímsfirði, en þar hefur veiði enn verið með tregara móti.“

Bjartsýni um góða vertíð

„Alls hafa 43 smábátar hafið veiðar og er aflinn að nálgast 2.300 tonn. Á sama tíma í fyrra var hann hins vegar 4.190 tonn af 40 bátum. Þá var helmingur þeirra kominn með yfir 100 tonn en nú aðeins 6 bátar sem náð hafa þeim afla,“ segir á vef sambandsins.

„Af þessu má sjá að makríllinn hefur það sem af er verið í minna mæli á veiðislóðum smábáta en í fyrra. Flestir sem rætt var við sögðu það ekkert segja til um endanlega veiði, heldur að makríllinn hefði tafist á leiðinni til þeirra. Bjartsýni virðist því ríkja um góða vertíð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,82 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,13 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 250 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 1.033 kg
25.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.734 kg
Þorskur 97 kg
Skarkoli 51 kg
Samtals 2.882 kg
25.4.24 Fengsæll HU 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 141 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 7 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 1.472 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,82 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,13 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 250 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 1.033 kg
25.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.734 kg
Þorskur 97 kg
Skarkoli 51 kg
Samtals 2.882 kg
25.4.24 Fengsæll HU 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 141 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 7 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 1.472 kg

Skoða allar landanir »