Stór borgarísjaki var á reki um 50 sjómílur (93 km) vestur af Látrabjargi í fyrrakvöld. Haraldur Hjálmarsson sjómaður tók myndina um klukkan 20.30. Haraldur áætlaði að jakinn hefði risið allt að 100 metra upp úr haffletinum. Hann sagði að þarna hefði verið annar jaki miklu minni og svo einhver lítil jakabrot.
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við HÍ og hafíssérfræðingur, sagði ekki óvenjulegt að borgarísjakar sem líklega hefðu brotnað úr grænlenskum jöklum sæjust á þessum árstíma. Meira ber á borgarís á reki á haustin en á öðrum tímum ársins. Ingibjörg fann jakann á gervitunglamynd og ætlar að fylgjast með hvert hann fer.
„Stundum getur verið erfitt að greina á gervitunglamyndunum hvort um er að ræða stóran borgarís eða stór skip. Kosturinn við stóra borgarísjaka er að þeir eiga að sjást vel í ratsjám skipa. Jakarnir valda meiri hættu fyrir skip þegar þeir fara að brotna og sjást verr,“ sagði Ingibjörg.
Hún sagði að jakinn væri mjög nálægt skilum Austur-Grænlandsstraumsins og Irminger-straumsins og stutt í að hann kæmist í hlýrri sjó.
Uppfært: Samkvæmt gervihnattamyndum er jakinn 600 metra langur og 450 metra breiður. Fylgst verður áfram með ferðum hans með aðstoð gervihnatta.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |