Marel og Fisktækniskóli Íslands hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf til næstu tveggja ára, þar sem Marel sér skólanum fyrir kennsluaðstöðu, aðgengi að tækjum og kennurum í þeim greinum sem lúta að tækjum Marels.
Undirritunin fór fram á Íslensku sjávarútvegssýningunni í síðustu viku en báðir aðilar lýstu þá mikilli ánægju með samstarfið síðastliðin þrjú ár.
„Tæknistigið í íslenskum fiskvinnslum eykst með tilkomu nýrrar tækni sem byggist á tölvustýrðum tækjum og línum. Það er því aukin þörf á sérhæfðu starfsfólki í fiskvinnslu með góðan bakgrunn í tækni og hugbúnaði. Til að mæta þessari þörf hafa Marel og Fisktækniskóli Íslands í sameiningu boðið upp á tveggja anna nám síðastliðin þrjú ár sem kallast Marel vinnslutæknibraut,“ segir á vef Marel.
„Hlutverk Marel vinnslutæknis er að sjá til þess að Marel tæki og hugbúnaður í vinnslunni séu að vinna á sem skilvirkastan máta og þannig skapa aukin verðmæti. Marel vinnslutæknir á að geta allt sem tengist vinnslu á staðnum, s.s. þrifið tækin, greint helstu bilanir og takmarkað umhverfisaðstæður sem hafa áhrif á virkni tækjanna.
Námið er hugsað jafnt fyrir fólk sem kemur beint úr tveggja ára grunnnámi Fisktækniskólans sem og fyrir þá sem stunda atvinnu, búa utan skólasvæðis og hafa staðist raunhæfnimat á vegum Fisktækniskólans. Samstarfsverkefnið byggist á að þróa og reka eins árs framhaldsnám við skólann sem hefur það að markmiði að útskrifa Marel vinnslutækna.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |