Olís býður neyðaraðstoð fyrir sveitirnar

Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís og Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnarfélagsins …
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís og Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, undirrituðu samstarfssamninginn á sjávarútvegssýningunni. Ljósmynd/Landsbjörg

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Í samningnum felst meðal annars að Olís verður áfram einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og mun styðja við þau bæði fjárhagslega og með verulegum afsláttum af eldsneyti og öðrum vörum.

Olís mun enn fremur bjóða upp á sérstaka neyðaraðstoð þar sem afgreiðslustöðvar verða opnaðar að kvöld- og næturlagi ef björgunaraðgerðir eru í gangi til að björgunarsveitir hafi aðgang að eldsneyti og öðrum búnaði á öllum tímum sólarhringsins.

Alltaf til staðar í hvaða veðrum sem er

Samningurinn var undirritaður á íslensku sjávarútvegssýningunni í Smáranum síðastliðinn fimmtudag og var blaðamaður 200 mílna viðstaddur.

„Við erum afar stolt af því að ganga til áframhaldandi samstarfs við Slysavarnafélagið Landsbjörg og að geta lagt félaginu lið. Björgunarsveitarmenn vinna ómetanlegt starf og eru alltaf til staðar í hvaða veðrum og aðstæðum sem er og koma öðrum til bjargar á ögurstundu,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís.

„Við höfum átt einstaklega gott og farsælt samstarf við félagið á undanförnum sex árum og hlökkum til að vinna með því næstu þrjú árin.”

Saman unnið að góðum verkefnum

„Fyrir félag eins og Slysavarnafélagið Landsbjörg er ómetanlegt að eiga góða að. Bakhjarlar og styrktaraðilar gera okkur kleift að halda úti öflugu starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda um allt land,“ sagði Smári Sigurðsson, formaður Landsbjargar.

„Samstarf okkar og Olís hefur verið mjög farsælt undanfarin ár og hefur Olís stutt við starf sjálfboðaliða félagsins með myndarlegum hætti og saman höfum við unnið að ýmsum góðum verkefnum.

Það er mér mikil ánægja að skrifa undir þennan samning sem staðfestir áframhaldandi gott samstarf við Olís, sem einn af okkar aðalstyrktaraðilum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.955 kg
Skarkoli 55 kg
Samtals 4.010 kg
18.4.24 Vonin NS 41 Grásleppunet
Grásleppa 4.023 kg
Þorskur 219 kg
Skarkoli 122 kg
Samtals 4.364 kg
18.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.909 kg
Þorskur 3.631 kg
Skarkoli 325 kg
Hlýri 28 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 9.909 kg
18.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.104 kg
Þorskur 22 kg
Samtals 1.126 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.955 kg
Skarkoli 55 kg
Samtals 4.010 kg
18.4.24 Vonin NS 41 Grásleppunet
Grásleppa 4.023 kg
Þorskur 219 kg
Skarkoli 122 kg
Samtals 4.364 kg
18.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.909 kg
Þorskur 3.631 kg
Skarkoli 325 kg
Hlýri 28 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 9.909 kg
18.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.104 kg
Þorskur 22 kg
Samtals 1.126 kg

Skoða allar landanir »