Hækkun tvo mánuði í röð

Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkaði í september annan mánuðinn í röð, nú um 0,6%. Gildi ágústmánaðar var endurskoðað lítillega niður á við en annarra mánaða upp á við. Of snemmt er að segja til um hvort hækkunin nú gefi til kynna aukningu hagvaxtar á ný en hagvísirinn hefur bent til að hægja sé á hagvexti niður á eðlilegra stig, segir í fréttatilkynningu.

Þrír af sex undirliðum hækka frá í ágúst. Aukning mælist í verðmæti fiskafla, innflutningi og heimsvísitölu hlutabréfa. Aukinn afli hefur mest áhrif til hækkunar hagvísisins.

„Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum. Langvinn stjórnarkreppa í kjölfar þingkosninga í lok mánaðarins gæti einnig haft neikvæð áhrif.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í september hækka þrír af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í ágúst hækka einnig þrír af sex undirþáttum.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »