Helgi Bjarnason
„Klakið á hrognunum og startfóðrunin er mikilvægust. Hvernig til tekist með það segir mikið til um hversu auðvelt framhaldið verður,“ segir Sigurvin Hreiðarsson, stöðvarstjóri seiðaeldisstöðvar Arctic Smolt í Tálknafirði. Uppbygging þessarar stóru seiðastöðvar er vel á veg komin.
Sigurvin og samstarfsmenn hans vinna mikið í klakherberginu þessa dagana. Þangað eru komnar 3,3 milljónir laxahrogna frá Stofnfiski á Reykjanesi og lauk klaki um helgina. „Við höldum þeim í þessu herbergi í sex vikur. Þegar kviðpokinn er horfinn fara seiðin í startfóðrunarker hér hinum megin við vegginn. Sú eining verður tilbúin á næstu fjórum vikum,“ segir Sigurvin.
Vinnan í klakhúsinu gengur meðal annars út á það að hreinsa dauð hrogn úr hrognabökkunum og síðan himnuna eftir að klaki er lokið. Við þetta eru mörg handtök.
Seiðin verða í startfóðrun í fimm til sex mánuði og fara þá í næsta rými sem verður tilbúið í maí. Lokaeldið fer fram í enn einu húsinu sem þegar er tilbúið. Þaðan fara seiðin út í sjókvíar Arctic Seafarm í fjörðum Vestfjarða.
Fleiri hús eru risin og byrjað verður á enn einu á næsta ári. Sigurvin segir að stöðin geti framleitt 5-8 milljónum seiða á ári. Það fari nokkuð eftir útfærslu, til dæmis hversu stór seiði verði afhent. Stærri seiðin þurfi miklu meira rými en þau hefðbundnu. Þá ráðist framleiðslan einnig af því hvað hægt er að setja út af seiðum, það er að segja leyfum systurfélagsins, Arctic Seafarm, til framleiðslu í sjókvíaeldisstöðvum í fjörðum Vestfjarða.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 501,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 371,38 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,97 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 8.181 kg |
Þorskur | 404 kg |
Skarkoli | 88 kg |
Ýsa | 78 kg |
Samtals | 8.751 kg |
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 3.179 kg |
Þorskur | 460 kg |
Skarkoli | 160 kg |
Ýsa | 94 kg |
Samtals | 3.893 kg |
18.4.24 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.581 kg |
Ýsa | 18 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 1.616 kg |
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 923 kg |
Ýsa | 369 kg |
Þorskur | 199 kg |
Hlýri | 78 kg |
Skarkoli | 56 kg |
Langa | 25 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 1.668 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 501,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 371,38 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,97 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 8.181 kg |
Þorskur | 404 kg |
Skarkoli | 88 kg |
Ýsa | 78 kg |
Samtals | 8.751 kg |
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 3.179 kg |
Þorskur | 460 kg |
Skarkoli | 160 kg |
Ýsa | 94 kg |
Samtals | 3.893 kg |
18.4.24 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.581 kg |
Ýsa | 18 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 1.616 kg |
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 923 kg |
Ýsa | 369 kg |
Þorskur | 199 kg |
Hlýri | 78 kg |
Skarkoli | 56 kg |
Langa | 25 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 1.668 kg |