Þurfti að smíða nýjan varahlut

Örfirisey RE.
Örfirisey RE. Af vef HB Granda

Frystitogarinn Örfirisey RE er þessa dagana í slipp hjá Skarvik AS í Svolvær í Norður-Noregi en skipið varð fyrir því óhappi í lok október að bilun varð í skrúfubúnaði þegar það var að veiðum í Barentshafi. Búið er að komast að orsökum bilunarinnar og standa vonir til þess að togarinn komist aftur til veiða í byrjun næsta mánaðar samkvæmt vef útgerðar skipsins, HB Granda.

Örfirisey RE varð aflvana vegna bilunar í skrúfubúnaði við veiðar í rússnesku landhelginni um 440 sjómílur norður af Båtsfjord í Norður-Noregi aðfaranótt 27. október og var dregið til hafnar til Båtsfjord af norska olíuskipinu M/T Norsel. Var komið til hafnar 1. nóvember.

Haft er eftir Herberti Bjarnasyni, tæknistjóra skipa hjá HB Granda, að byrjað hafi verið að landa afla skipsins og í framhaldinu hafi kafari verið sendur til að skoða hvort hægt væri að gera við skrúfubúnaðinn með skipið á floti. Það reyndist ekki hægt. Fullbókað var í slippnum í Kirkenes og því var skipið dregið til Svolvær. Þangað kom Örfirisey aðfaranótt miðvikudagsins og hófst vinna við skipið strax eftir komuna.

Eftir að stýrið var fjarlægt var skrúfan opnuð til að kanna hvað hefði valdið því að hún virkaði ekki sem skyldi. Kom í ljós að svokallaður skiptiteinn, sem stjórnar stöðu skrúfublaða, var brotinn og ekki hægt að gera við hann. Smíði á nýjum skiptiteini hefur verið sett í gang hjá framleiðanda skrúfubúnaðarins og standa vonir til þess að viðgerð ljúki eftir mánaðamótin þannig að Örfirisey komist til veiða í byrjun desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet
Grásleppa 934 kg
Samtals 934 kg
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 12.806 kg
Ýsa 1.274 kg
Steinbítur 114 kg
Ufsi 47 kg
Keila 13 kg
Karfi 2 kg
Samtals 14.256 kg
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.701 kg
Ýsa 13 kg
Keila 3 kg
Samtals 1.717 kg
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.661 kg
Karfi 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.681 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet
Grásleppa 934 kg
Samtals 934 kg
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 12.806 kg
Ýsa 1.274 kg
Steinbítur 114 kg
Ufsi 47 kg
Keila 13 kg
Karfi 2 kg
Samtals 14.256 kg
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.701 kg
Ýsa 13 kg
Keila 3 kg
Samtals 1.717 kg
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.661 kg
Karfi 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.681 kg

Skoða allar landanir »