Síldarlýsið komið í verslanir

Margildi fær hrálýsið hjá íslenskum fiskmjölsverksmiðjum, svo sem HB Granda, …
Margildi fær hrálýsið hjá íslenskum fiskmjölsverksmiðjum, svo sem HB Granda, Síldarvinnslunni, Loðnuvinnslunni og Eskju, en fullvinnur afurðina hjá norskri lýsisverksmiðju. mbl.is/Kristinn Magnússon

Síldarlýsi frá frumkvöðlafyrirtækinu Margildi, með vægu appelsínubragði, er nú fáanlegt á Íslandi og herma nýjustu fréttir að fyrsta pöntun frá Litháen til dreifingar í Eystrasaltsríkjunum sé tilbúin til sendingar, að því er fram kemur á vef Matís.

Áður hafa 200 mílur fjallað um fyrirtækið en það hefur þróað sérstakar aðferðir til að kaldhreinsa lýsi til manneldis úr uppsjávartegundum á borð við síld, loðnu og makríl.

Hefur fyrirtækið einkarétt á vinnsluaðferðum sínum en með þeim má gera hágæða lýsi úr hráefni sem áður nýttist eingöngu í fóðurgerð. Lýsið má bæði nota í matvæli, til að auka næringargildi þeirra með heilnæmum omega-3-fitusýrum, og sem fæðubótarefni í fljótandi formi eða hylkjum.

Margildi fær hrálýsið hjá íslenskum fiskmjölsverksmiðjum, svo sem HB Granda, Síldarvinnslunni, Loðnuvinnslunni og Eskju, en fullvinnur afurðina hjá norskri lýsisverksmiðju.

Margildi hefur áður m.a. selt síldarlýsi til Bandaríkjanna og Noregs við góðar undirtektir, en fyrirtækið hefur unnið að nýsköpun sinni í nokkur ár í samstarfi við fjölmarga aðila, þar á meðal Matís, með styrkjum frá AVS, Tækniþróunarsjóði og Uppbyggingarsjóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,91 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,91 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »