Þorskveiði ekki slakari í tíu ár

Að störfum um borð í Engey, togara HB Granda.
Að störfum um borð í Engey, togara HB Granda. Ljósmynd/Þröstur Njálsson

Þorskveiði togara HB Granda hefur verið slök í haust og það sem af er vetri, eða fram að síðustu helgi þegar skipin fengu mjög góðan þorskafla. Fara þarf tíu ár aftur í tímann, eða aftur til þess tíma þegar þorskkvótinn var skertur verulega, til að finna dæmi um jafn slaka þorskveiði á þessum tíma árs.

Mokafli hjá þrjátíu togurum

Þetta segir Birkir Hrannar Hjálmarsson, útgerðarstjóri ísfisktogara HB Granda, en fjallað er um þetta á vef útgerðarinnar.

Segir þar að vert sé að hafa í huga að eftir eigi að koma í ljós hvort það skot, sem kom í þorskveiðina síðastliðinn laugardag á Vestfjarðamiðum, bendi til aukinnar veiði næstu vikurnar.

„Þetta er lang­besta veiðin sem feng­ist hef­ur frá því í sum­ar og það er ekki laust við að ákveðin fortíðarþrá hafi gert vart við sig því þarna voru ein­ir þrjá­tíu tog­ar­ar að veiðum og það var mokafli hjá þeim öll­um,“ sagði Heimir Guðbjörns­son, skip­stjóri á Helgu Maríu AK, í gær.

Ef til vill bara orðinn góðu vanur

Að sögn Birkis Hrannars er þó ljóst að haustveiði á þorski hefur verið mun dræmari í ár og í fyrra en í mörg ár þar á undan. Hann segir að undanfarnar vikur hafi verið dræmar fyrir vestan og í fleiri skipti en færri hafi skipin ekki náð þeim þorski sem þeim hafi verið ætlaður. Besta veiðin hafi verið yfir nóttina og jafnvel þá hafi komið fyrir að skipin hafi ekki náð tonni á togtímann.

„Líklega hefur bolfiskveiðin frá 2009 til 2015 verið heilt yfir mjög góð, þ.e.a.s. í þorski, ufsa og karfa. Þá þótti gott ef t.d. Sturlaugur H. Böðvarsson AK kom með 60-65 tonn af tveggja kílóa þorski og lítið með því eftir 5 daga á Vestfjarðamiðum. Hér áður fyrr var þorskveiðin svona og e.t.v. var maður bara orðinn góðu vanur,“ segir Birkir Hrannar Hjálmarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »