Samið um smíði sjö nýrra togara

Tölvugerð mynd af skipunum sjö sem samið var um smíði …
Tölvugerð mynd af skipunum sjö sem samið var um smíði á. Lengst til vinstri eru tvö skip í litum Gjögurs, síðan kemur skip Útgerðarfélags Akureyringa, þá tvö skip Skinney-Þinganess og loks tvö skip Bergs-Hugins. Teikning/VARD

Undirritaðir hafa verið samningar um smíði á sjö nýjum togurum fyrir fjórar íslenskar útgerðir. Um er að ræða tvö skip fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar, tvö skip fyrir Gjögur, tvö fyrir Skinney — Þinganes og eitt fyrir Útgerðarfélag Akureyringa.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, en þar segir að áætlað sé að smíði hvors skips fyrir útgerðina taki 14 mánuði. Gert er ráð fyrir að fyrra skipið verði afhent þeim í marsmánuði 2019 og hið síðara í maí sama ár.

Frá undirritun samninga um smíði skipanna sjö. Frá vinstri: Hjörvar …
Frá undirritun samninga um smíði skipanna sjö. Frá vinstri: Hjörvar Kristjánsson (Samherji), Ásgeir Gunnarsson (Skinney – Þinganes), Aðalsteinn Ingólfsson (Skinney – Þinganes), Gunnþór Ingvason (Síldarvinnslan), Guðmundur Alfreðsson (Bergur-Huginn), Geir Larsen (VARD), Freyr Njálsson (Gjögur), Grétar Sigfinnsson (Síldarvinnslan), Arnet Rindaroy (VARD) og Ingi Jóhann Guðmundsson (Gjögur). Ljósmynd/Síldarvinnslan

Smíðuð í Noregi

Nýju skipin verða smíðuð af skipasmíðastöðinni VARD í Noregi. Fyrirkomulag og val á búnaði verður þá unnið í samstarfi við útgerðirnar, en skipin verða 28,98 metrar að lengd og 12 metrar að breidd.

Verða í þeim tvær aðalvélar með tveimur skrúfum, ásamt nýrri kynslóð rafmagnsspila frá Seaonics.

Fram kemur að í skipunum verða íbúðir fyrir 13 manns. Þau muni þá taka 244 x 460 lítra kör í lest, eða um 80 tonn af ísuðum fiski. Tekið er fram að við hönnun þeirra hafi verið vandlega hugað að allri nýtingu á orku.

Þannig munu Vestmannaey og Bergey líta út.
Þannig munu Vestmannaey og Bergey líta út. Teikning/VARD

Horft verði til íslenskra framleiðenda

Við hönnun á vinnsludekki verði enn fremur höfð að leiðarljósi vinnuaðstaða sjómanna, öflug kæling og góð meðhöndlun á fiski. Horft verði til þeirra gæða og reynslu sem íslenskir framleiðendur búa yfir á smíði vinnslubúnaðar.

„Ástæða þess að ákveðið var að semja við VARD er sú að um er að ræða öflugt fyrirtæki, þar sem ferlið frá hönnun skips til afhendingar á fullbúnu skipi er á hendi sama aðila.  Því er aðeins við einn aðila að semja,“ segir Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, sem undirritaði samninginn fyrir hönd dótturfyrirtækisins.

Síðastliðið sumar kynnti Síldarvinnslan þau áform sín að endurnýja allan ísfisktogaraflota fyrirtækisins og mun þessi nýsmíðasamningur vera fyrsti áfangi þess viðamikla verkefnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »