Ofhleðsla báta er ekki afrek

Hjördís HU hallast verulega og áhöfn hafði skömmu áður verið …
Hjördís HU hallast verulega og áhöfn hafði skömmu áður verið færð um borð í björgunarskipið Björgu.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gefið út skýrslu um atvik sem varð á Breiðafirði fyrr á þessu ári. Þá munaði minnstu að verulega ofhlaðinn bátur, Hjördís HU 16, sykki en um borð voru tveir menn.

Báturinn er rúm 10 brúttótonn og hleðsla umfram burðargetu hans reyndist vera 4,5 tonn. Skipstjórinn taldi hins vegar að burðargeta bátsins væri nægileg miðað við aðstæður.

Björgunarskipið Björg frá Rifi kom á staðinn og dró Hjördísi til hafnar. Áður hafði fiski verið fleygt fyrir borð til að létta bátinn, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

„Ofhleðsla báta er mjög alvarlegt mál sem virðist því miður vera allt of algengt. RNSA hvetur fjölmiðla, samfélagsmiðla og aðra til að hætta því að upphefja háttsemi sem þessa, það er ofhleðslu báta, sem hetjudáð og/ eða afrek,“ segir meðal annars í skýrslu rannsóknarnefndarinnar um atvikið.

Í orðunum hér að framan er nefndin að vísa til þess að alloft birtast í fjölmiðlum myndir af drekkhlöðnum bátum að koma til hafnar.

Ítarlegri umfjöllun birtist í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »