Marel hefur fært nokkrum fæðingardeildum hér á landi ungbarnavogir að gjöf í aðdraganda jólanna. Hefur fyrirtækið haft þennan háttinn á undanfarin ár, að gefa veglegar gjafir í þágu samfélagsins frekar en hefðbundin jólakort og -gjafir á aðventunni.
Fram kemur á vef fyrirtækisins að í lok október hafi fulltrúar þess heimsótt kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi og fæðingar- og vökudeildir LSH í Reykjavík. Fengu deildirnar alls fjórar ungbarnavogir að gjöf en einnig er stefnt að því að fæðingarheimilið Björkin fái vog.
„Við erum Snæfellingar og hugsum hlýtt til fæðingardeildarinnar hér á Akranesi,“ sögðu þeir Þórarinn og Valdimar við afhendingu gjafarinnar. Anna Björnsdóttir, deildarstjóri kvennadeildar HVE, veitti gjöfinni viðtöku en með þeim á myndinni eru Elísabet Harles ljósmóðir, Lára Dóra Oddsdóttir ljósmóðir, Katharina Schumacher, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, og Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði.
Ljósmynd/Marel
Mæla með tveggja gramma nákvæmni
Vogirnar mæla þyngd með tveggja gramma nákvæmni og þeim fylgir eilífðarábyrgð. Á þeim er sömuleiðis mælistika svo hægt er að mæla lengd barnanna samhliða vigtun. Hugbúnaður vogarinnar gerir enn fremur ráð fyrir hreyfingu og því kemur ekki að sök þó börnin kunni að hreyfa sig á meðan þau eru vigtuð.
Á Akranesi var vogin strax tekin í notkun og það var hin tveggja daga gamla Eldey Hrafntinna Éiru Sigurbjörnsdóttir sem fyrst var vigtuð. Snæfellingarnir Valdimar Gunnar Sigurðsson, alþjóðlegur sölustjóri Marel, og Þórarinn Kristjánsson, sölustjóri Marel á Íslandi, afhentu vogina á Akranesi fyrir hönd fyrirtækisins.