Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra mun skrifa undir samstarfsyfirlýsingu EFTA og Nígeríu um fríverslunarmál á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Buenos Aires í Argentínu, sem nú stendur yfir.
Guðlaugur Þór segir að með yfirlýsingunni skapist möguleikar á að efla viðskipti við Nígeríu að nýju, en dregið hefur úr útflutningi þangað síðustu ár í kjölfar efnahagslægðar og verndarráðstafana nígerískra stjórnvalda.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að hann telji mikil tækifæri felast í því að dýpka samstarf EFTA og Nígeríu á þennan hátt. Nígería sé eitt helsta viðskiptaland Íslands og um leið aðalmarkaðurinn fyrir þurrkaðar fiskafurðir.
Í samtali við 200 mílur fyrr í ár sagði Halldór Smári Ólafsson, framleiðslustjóri Haustaks á Reykjanesi, að markaðurinn í Nígeríu hafi reynst erfiður undanfarin ár. Þar sé slæmt efnahagsástand og tollar hafi verið auknir. Verð á skreið til Nígeríu hafi því lækkað um 50% og sé enn í lægð.
Guðlaugur talaði þá einnig fyrir því að lokið yrði við gerð samnings um að draga úr ríkisstyrkjum til ósjálfbærra og skaðlegra fiskveiða:
„Ég lagði áherslu á að skilaboð ráðherrafundarins væru skýr um að lokið verði við gerð samnings um að draga úr ríkisstyrkjum til ósjálfbærra og skaðlegra fiskveiða strax á næsta ári svo samningurinn geti tekið gildi fyrir árið 2020, eins og kveðið er á um í Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Guðlaugur Þór.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,19 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 120,61 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,14 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.154 kg |
Þorskur | 104 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Skarkoli | 18 kg |
Samtals | 2.297 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 52 kg |
Samtals | 52 kg |
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.903 kg |
Þorskur | 288 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 10 kg |
Samtals | 2.240 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.440 kg |
Samtals | 1.440 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,19 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 120,61 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,14 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.154 kg |
Þorskur | 104 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Skarkoli | 18 kg |
Samtals | 2.297 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 52 kg |
Samtals | 52 kg |
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.903 kg |
Þorskur | 288 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 10 kg |
Samtals | 2.240 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.440 kg |
Samtals | 1.440 kg |