„Er eðlileg samkeppni í sjávarútvegi?“

Nýr ráðherra er hvattur til að kynna sér efni álits …
Nýr ráðherra er hvattur til að kynna sér efni álits Samkeppniseftirlitsins. Ljósmynd/Þröstur Njálsson

Þann 19. nóvember 2012 komst Samkeppniseftirlitið að því að samkeppni í sjávarútvegi væri ekki með eðlilegum hætti. Í það minnsta ekki að öllu leyti. Þetta segir í tilkynningu frá SFÚ, Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda, sem hefur yfirskriftina „Er eðlileg samkeppni í sjávarútvegi?“.

Fjallað er um álit sem Samkeppniseftirlitið birti þann dag, þar sem bent hafi verið á samkeppnishindranir og aðstöðumun milli „lóðrétt samþættra“ útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja annars vegar, og þeirra fyrirtækja sem eingöngu stunda fiskvinnslu eða útgerð hins vegar.

Stofnunin er sögð hafa bent á fjórar leiðir til bóta á þessu ástandi:

  1. Lagasetningu um milliverðlagningu hjá samþættu fyrirtækjunum sem tryggi sjómönnum jöfn kjör og tryggi að laun þeirra séu ekki lægri hjá útgerðum sem einnig vinna afla.

  2. Breytingu hafnargjalda svo að tryggja megi að útgerðir sem einnig vinna afla, greiði ekki lægri hafnargjöld.

  3. Breytingu laga um Verðlagsstofu á þann veg að útgerðarmenn sem einnig eru með vinnslu komi ekki að mótun svokallaðs verðlagsstofuverðs, svo tryggja megi að allir sjómenn þiggi sömu laun.

  4. Breytingu laga á þann veg að fleiri aðilar en einungis útgerðarmenn geti leigt kvóta og þannig tryggt stöðu sína.

„Síðan hafa fjórir ráðherrar hafa haft tækifæri til að fara að álitinu. Vissulega haft mislangan tíma til þess en árið 2017 voru fimm ár liðin frá útgáfu þess,“ segir í tilkynningu SFÚ.

„Um leið og við bjóðum Kristján Þór Júlíusson velkominn í embætti sjávarútvegsráðherra viljum við nota tækifærið til að hvetja hann til að kynna sér efni álitsins. Breytingarnar sem SE lagði til væru allar til mikilla bóta og myndu styrkja íslenskan sjávarútveg enn frekar. Eðlileg samkeppni hlýtur alltaf að vera krafa í íslenskum sjávarútvegi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 209 kg
Samtals 209 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 209 kg
Samtals 209 kg

Skoða allar landanir »