Hugarburður eða furðulegur misskilningur

Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri Kastljóss, og Helgi Seljan, fyrrverandi fréttamaður …
Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri Kastljóss, og Helgi Seljan, fyrrverandi fréttamaður Kastljóss.

Alrangt er að fréttaskýringaþátturinn Kastljós hafi á einhvern hátt notfært sér viðtal við Elínu Björgu Ragnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Samtaka fiskútflytjenda, eða sett það í samhengi við umfjöllun í sama þætti um vísbendingar sem þá lágu fyrir um meinta undirverðlagningu Samherja til dótturfélaga sinna erlendis.

Þetta segja þeir Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri Kastljóss, og Helgi Seljan, fyrrverandi fréttamaður þáttarins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Vísa þeir til greinar sem birtist í Morgunblaðinu 17. janúar, eftir Elínu Björgu, þar sem hún sagði Kastljós hafa misnotað gróflega viðtal við sig fyrir tæpum sjö árum, og fleygt sér „inn í harka­lega sam­fé­lagsum­ræðu án þess að ég hefði hug­mynd um það fyrr en skaðinn var skeður“.

Sigmar og Helgi segja hana halda því fram að einhvers konar blekkingar hafi verið viðhafðar við vinnslu og birtingu viðtalsins.

„Hinu sama hefur forstjóri Vinnslustöðvarinnar haldið fram, ítrekað. Þetta er rangt.“

Viðtölin hafi verið tekin áður en rannsóknin hófst

„Í inngangi umfjöllunarinnar var skýrt og greinilega tekið fram að viðtöl í þættinum um verðmyndun fiskafla á Íslandi við Elínu Björgu, Guðmund Þ. Ragnarsson, formann Félags vélstjóra og málmtæknimanna, og Friðrik J. Arngrímsson, þáverandi framkvæmdastjóra LÍÚ, voru öll tekin áður en rannsókn á meintum brotum Samherja á gjaldeyrislögum hófst. Um það átti því enginn að þurfa að velkjast í vafa,“ skrifa Sigmar og Helgi.

„Hin almenna umfjöllun um tvöfalda verðmyndun á fiski var að því leytinu aðskilin umfjöllun um gögn frá Verðlagsstofu skiptaverðs sem sýndu rökstuddan grun um að Samherji seldi dótturfélögum sínum erlendis tiltekinn afla á tilteknu tímabili á lægra verði en í viðskiptum annarra útgerðarfélaga við óskylda aðila. Þau gögn voru eins og fram kom ekki fengin frá Seðlabanka Íslands, heldur Verðlagsstofu skiptaverðs, opinberri eftirlitsstofnun um fiskverð.

Umrædd umfjöllun í Kastljósi snerist því öðru fremur um gagnrýni sjómanna, sjálfstætt starfandi fiskverkana og fleiri, á tvöfalda verðmyndun á fiski. Verð á afla er breytilegt allt eftir því hvort hann er keyptur af sömu útgerð og rekur veiðiskipin eða seldur ótengdum aðila. Þá staðreynd höfðu fyrrgreindir aðilar, ekki síst Samtök fiskútflytjenda, gagnrýnt harðlega. Og gerðu síðast opinberlega í liðinni viku.“

Þessa sömu gagnrýni hafi Elín Björg sjálf sett fram í störfum sínum fyrir samtökin og sagt að breytingar á þessu fyrirkomulagi væru helsta baráttumál samtakanna.

„Þessu var framkvæmdastjóri LÍÚ ekki sammála. Sjónarmið beggja voru reifuð í umræddum Kastljósþætti, meðal annars áhyggjur Elínar Bjargar og samtaka hennar af því að með litlu eftirliti og ríkjandi fyrirkomulagi kæmi fátt ef nokkuð í veg fyrir að útgerðir gætu flutt fisk úr landi til dótturfélaga sinna erlendis og tekið hagnað af viðskiptunum út erlendis.“

Benda þeir á að orðrétt hafi Elín sagt þetta í þættinum:

„Eins og við sjáum oft getur fyrirtækið líka átt erlent sölufyrirtæki og selt áfram á lágmarksverði frá fiskvinnslunni yfir í erlenda fyrirtækið – sölufyrirtækið, og tekið arðinn af allri greininni út í erlenda fyrirtækinu. Og hvort menn eru að leika þennan leik læt ég ósagt en allavega möguleikinn er þarna til staðar. Og auðvitað ættu menn að skoða þetta.“

Frjálst að leita til siðanefndar RÚV

Elín Björg segi þá í grein sinni, nú sjö árum síðar, að með orðum sínum hafi hún ekki verið að lýsa öðru en löglegri leið fyrirtækja sem vert væri að skoða og breyta.

„Það er einfaldlega ekki rétt hjá Elínu Björgu. Um bann við því að færa hagnað úr landi með þeim hætti sem hún lýsti er sérstaklega fjallað í lögum og hefur verið um langa hríð, samanber ákvæði 57. greinar tekjuskattslaga og sambærileg þágildandi lög um gjaldeyrisviðskipti.

Þess vegna – og eðlilega – var gengið á Elínu í umræddu viðtali og hún krafin um dæmi um þau íslensku fyrirtæki sem léku þann leik sem hún lýsti. Hún fékkst ekki til þess þótt hún hefði gefið í skyn að hún þekkti slík dæmi.

Það var því sjálfsagt og eðlilegt að biðja Elínu Björgu um að rökstyðja mál sitt með dæmum í umræddu viðtali, og þekkist víðast hvar sem fagleg vinnubrögð í blaðamennsku.“

Viðtalið hafi því hvorki verið tekið né flutt á villandi eða rangan hátt.

„Vitaskuld er Elínu Björgu frjálst að leita til siðanefndar RÚV með erindi sitt nú, nærri sjö árum eftir að viðtalið birtist. Spurningin er hins vegar sú hvers vegna hún gerði það ekki mun fyrr? Erindið sem hún segist hafa sent daginn eftir umfjöllunina var athugasemd sem krafðist frekari skýringa af hennar hálfu og henni fylgdi hvorki ósk um birtingu né leiðréttingu. Eftir að Elín sendi umrædda athugasemd var árangurslaust reynt að ná sambandi við hana til að óska frekari skýringa.

Lýsing hennar á málavöxtum er því ekki sannleikanum samkvæm.“

Grein Elínar megi skilja svo að umrætt viðtal, sem tekið hafi verið nokkru áður en umfjöllunin var birt, hafi verið einu samskipti hennar við fréttamenn Kastljóss og birting umfjöllunarinnar því komið henni í opna skjöldu. Það sé einnig rangt.

„Fréttamaður átti í samskiptum við Elínu um efnið fyrir og ekki síður eftir að viðtalið var tekið, í því skyni að afla frekari upplýsinga.

Elínu var allan tímann ljóst að viðtalið sem tekið var við hana yrði birt í umfjöllun um gagnrýni á tvöfalda verðmyndun á fiski og það samkeppnisforskot sem útgerðir, sem einnig áttu eigin sölufyrirtæki erlendis, hefðu af þeim sökum.

Og nákvæmlega þannig birtist viðtalið.“

Snerist um deilur milli áhafnar skips og Vinnslustöðvarinnar

Sigmar og Helgi segja að rétt sé að taka fram að í umfjöllun Kastljóss um verðmyndun sjávarafla og vísbendingar um undirverðlagningu sjávarafla úr landi hafi því aldrei verið haldið fram að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sætti rannsókn eða lægi undir grun um slík brot hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Íslands.

„Þær fullyrðingar og samsærisbrigsl forstjóra Vinnslustöðvarinnar í ítrekuðum viðtölum hans við sjálfan sig á vef Vinnslustöðvarinnar og í greinum í Morgunblaðinu undanfarinn mánuð eru annaðhvort hugarburður eða furðulegur misskilningur hans.

Kastljós hafði aldrei upplýsingar um að Vinnslustöðin sætti neinni slíkri rannsókn og hélt því aldrei fram.“

Umfjöllun um gagnrýni sjómanna á verðmyndun Vinnslustöðvarinnar hafi snúist um deilur sem komið hefðu upp milli áhafnar skips og Vinnslustöðvarinnar vegna uppsjávarafla sem Vinnslustöðin hafi keypt og selt áfram til dótturfélags síns í Rússlandi.

„Aldrei var fjallað um viðskipti Vinnslustöðvarinnar með ufsa, eins og forstjórinn hefur haldið fram, heldur snerist sá þáttur um verðmyndun og skort á gegnsæi í viðskiptum Vinnslustöðvarinnar eins og kom fram í viðtali við forystumenn stéttarfélaga sjómanna, í Eyjum og á landsvísu, og forstjóri Vinnslustöðvarinnar svaraði.

Deilur um fyrirkomulag fisksölu Vinnslustöðvarinnar standa í raun enn, samanber forsíðufrétt Morgunblaðsins frá því stuttu fyrir jól, og frásögn fyrrverandi stjórnarmanns í fyrirtækinu af árangurslausum tilraunum sínum til að afla svara við þeim.“

Lýsing sem fer þvert á raunveruleikann

Sigmar og Helgi segja að athyglisvert sé að verða vitni „að því samráði sem Elín Björg Ragnarsdóttir og forstjóri Vinnslustöðvarinnar virðast hafa haft um greinarskrif sín, eins og þau lýsa bæði. Forstjórinn hafði enda, viku áður en grein Elínar Bjargar birtist, boðað að stór og mikil tíðindi væru væntanleg.“

Einkum sé samráðið forvitnilegt í ljósi þess að grein Elínar Bjargar hafi birst sama dag og til hafi staðið að birta skýrslu um skoðun Ríkisendurskoðunar á eftirliti Fiskistofu með veiðum, löndun og vinnslu sjávarafurða.

„Skýrslu sem beinlínis gefur stofnun sem treyst hefur verið fyrir mikilvægu hlutverki algjöra falleinkunn.

Elín Björg Ragnarsdóttir er ekki bara lögmaður úti í bæ eins og ætla má af grein hennar heldur hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá þessari sömu Fiskistofu og meðal annars komið fram og haldið ræður um meint öflugt starf sitt og stofnunarinnar við eftirlit. Lýsing sem fer þvert á raunveruleikann sem nú blasir við.

Á sama tíma hefur hún þó gefið sér tíma til að setjast niður með forstjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum til að reyna að endurskrifa sjö ára gamalt viðtal Kastljóss við hana.

Það er áhugavert, svo ekki sé fastar að orði kveðið. En þó kannski svo lýsandi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »