Svara gagnrýni formanns LS

Grásleppu landað á Þórshöfn.
Grásleppu landað á Þórshöfn. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, og Guðjón Sigurðsson, sérfræðingur í meðaflaútreikningum, segjast telja það sérstakt að Axel Helgason, formaður Landssambands smábátaeigenda, endurtaki í samtali við 200 mílur gagnrýni sem svarað hafi verið í ítarlegri skýrslu stofnunarinnar í mars á síðasta ári.

Vísa þeir til viðtals við Axel sem birtist í sérblaði 200 mílna um sjávarútveg sem fylgdi Morgunblaðinu 14. desember og var endurbirt á vefnum fyrr í þessum mánuði. Fjallaði viðtalið um sviptingu á MSC-vottun grásleppuveiða vegna meðafla annarra tegunda, þar sem Axel gagnrýndi útreikninga um áætlaðan meðafla.

Í eftirlitsferðum Hafrannsóknastofnunar hefðu til að mynda veiðst 46 útselir, þar af nánast allir í þremur eftirlitsferðum við Vestfirði og í innanverðum Breiðafirði, og þeir reiknaðir upp í fjöldann 2.870 á landsvísu. Sagði hann þá niðurstöðu afar merkilega, enda hefði stærð stofnsins síðast verið metin í kringum 4.200 seli, árið 2012. Samkvæmt þessum útreikningum ættu því 68% stofnsins að veiðast á hverju ári sem meðafli.

„Þetta stenst enga skoðun“

„Nú er komið nýtt stofnmat sem hljóðar upp á 6.000 seli og er því um að ræða 50% fjölgun á sex árum. Það vekur upp spurningar um áreiðanleika þessara talna sem verið er að vinna með. Þetta stenst enga skoðun. Ef þetta væri rétt gerðu menn vart annað en að draga sel um borð,“ sagði Axel meðal annars.

Benti hann einnig á að víða erlendis þekkist það, þegar meðafli sé uppreiknaður, að undanskilin séu þau svæði þar sem viðkomandi tegund haldi sig ekki.

„Það sem við mótmælum sérstaklega er að svæðin fyrir norðan og austan, sem hafa ekki teistuna, skarfinn og útselinn í sama magni, séu ekki undanskilin. Samanlagður veiðileyfafjöldi á þessum svæðum er 53% af heildinni á landinu. Það hefði varla neitt átt að uppreiknast á þessi svæði.“

Skýrslan hafi svör við flestu

Í skriflegu svari sem Guðmundur og Guðjón hafa sent 200 mílum segir að rétt sé að benda á að umræddri gagnrýni hafi, eins og áður sagði, þegar verið svarað í ítarlegri skýrslu sem komið hafi út í marsmánuði og finna megi á vef Hafrannsóknastofnunar.

„Í skýrslunni var gögnunum skipt upp eftir svæðum, tíma og dýpi og því hefur gagnrýni formannsins nú verið svarað. Í reynd má finna svör í skýrslunni við flestum þeim atriðum sem formaðurinn tínir til og því verður að telja sérstakt að hann endurtaki gagnrýni sem svarað var ítarlega fyrir tæplega ári síðan,“ segja Guðmundur og Guðjón. Í stuttu máli megi segja að þeir þættir sem Axel telji upp í viðtalinu hafi haft lítil áhrif á heildarmat á meðafla fugla og sjávarspendýra. Hér á eftir fer svar þeirra í heild sinni:

„Gögn úr 193 róðrum eftirlitsmanna Fiskistofu voru notuð til uppreikningsins í skýrslunni, og voru róðrarnir farnir frá 2014-2017. Meðaflinn var metinn á fjóra vegu; án skiptingar, skipt upp eftir svæðum, skipt upp eftir dýpi og skipt upp eftir mánuðum, auk þess sem skráningar skipstjórnarmanna á meðafla voru teknar saman. Breytileiki í meðafla milli ára og áhrif handahófskenndrar sýnatöku voru líka könnuð.

Matið fyrir sjávarspendýr var lægst skipt upp eftir svæðum (3100 ± 1086 dýr á ári), næst lægst án skiptingar (3570 ± 607 dýr á ári), en matið skipt eftir dýpi var aðeins hærra (3620 ± 2860 dýr á ári) og hæst var matið skipt upp eftir mánuðum (3850 ± 1577 dýr á ári). Skráningar sjávarspendýra í afladagbækur voru mun minni eða 988 dýr, þar af 700 selir, árið 2017. Mat á meðafla sjófugla fylgdi álíka mynstri, en matið var lægst skipt upp eftir svæðum (7210 ± 3030 fuglar), næst lægsta var það án svæðaskiptingar (8150 ± 1222 fuglar), matið skipt upp eftir dýpi kom þar á eftir (8800 ± 3962 fuglar) en hæst var matið skipt upp eftir mánuðum (9100 ± 3180 fuglar). Til samanburðar voru 2417 fuglar skráðir í afladagbækur grásleppubáta árið 2017.

Í athugun sem var framkvæmd árið 2017 hvort handahófskennt róðraval hefði áhrif á meðaflann kom í ljós að meðafli bæði spendýra og fugla var hærri í þeim róðrum sem valdir voru af handahófi heldur en í þeim róðrum sem valdir voru með áhættumati út frá meðafla þorsks eða annarra þátta. Því er ólíklegt að sjálft áhættumatið hafi nokkur áhrif á mat meðafla sjávarspendýra og fugla.

Af þeim tegundum sem vottunin féll á var meðaflatíðni landsels nokkuð jöfn milli svæða, dýpa og mánaða og veiddust selir á öllum veiðisvæðum nema Suðurlandi, og ekki var hægt að sjá mun milli mánaða eða dýpis. Metinn meðafli landsels (uppskipt eftir veiðisvæðum) var í kringum 1200-1300 dýr (700-1700 dýr), en á sama tíma skráði flotinn 700 seli af öllum tegundum.

Mikil óvissa er í kringum meðaflamat útsels. Meðaflatíðni útsels var hærri í Breiðafirði og við Vestfirði heldur en á öðrum svæðum, auk þess sem tíðnin var hærri á 0-10 metra dýpi heldur en á öðrum dýptarbilum. Metinn meðafli útsels (uppskipt eftir veiðisvæðum) var í kringum 1000 dýr (500-1600 dýr), en eins og áður sagði er óvissa þessa mats mjög mikil og mun nákvæmni þess ekki batna nema með því að auka þekju eftirlits töluvert.

Meðaflatíðni teistu var hærri í Faxaflóa, Breiðafirði, Húnaflóa og á Austurlandi heldur en öðrum svæðum, auk þess sem meira veiddist af henni á 0-10 metra dýpi og 20-30 metra dýpi heldur en á öðrum dýptarbilum. Fullyrðing formannsins um að það sé „sannað“ að teista veiðist ekki á meira dýpi en 15 metrum er byggð á rannsókn sem Birdlife International stóð fyrir, stenst því ekki nánari skoðun, en formaðurinn gagnrýnir jafnframt Birdlife International harðlega á öðrum stað í viðtalinu. Auk þess sýna upplýsingar úr róðrum eftirlitsmanna að fullyrðing Axels um að teistu sé lítið að finna fyrir austan er einfaldlega röng. Metinn meðafli teistu (uppskipt eftir veiðisvæðum) var í kringum 1500 fuglar (700-2325), og eru því neðri öryggismörk matsins nálægt þeim fjölda sem grásleppuflotinn skráði í afladagbækur 2017 (600 fuglar).

Hægt er að taka undir athugasemdir formannsins um beinar veiðar á sel, og hefur Hafrannsóknastofnun lagt til að stjórnvöld leiti leiða til að koma í veg fyrir beinar veiðar á bæði landsel og útsel í árlegri ráðgjöf sinni, auk þess að leggja til að lögbinda skráningu beinnar veiði á sel.

Uppreikningar á meðafla eru ekki einföld aðgerð, og töluverð óvissa er í gögnunum eins og sést á víðum öryggismörkum í kringum matið hjá flestum tegundum. Til að minnka þá óvissu þarf því að fjölga eftirlitsferðum eða afla gagna á annan hátt t.d. með myndavélum eða stórbættri skráningu sjómanna í afladagbækur en mikill misbrestur er á að sjómenn skrái meðafla líkt og lög gera ráð fyrir. Einnig er mikilvægt að halda áfram öflugri vöktun á stærð sjávarspendýrastofna við landið, og líklegt er að auka þurfi eftirlit og rannsóknir á stofnstærð þeirra spendýra og sjófuglastofna sem verða fyrir áhrifum frá fiskveiðum við landið.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »