Vill leyfi til að farga Sigurfara

Kútter Sigurfari.
Kútter Sigurfari. Ljósmynd/Akraneskaupstaður

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur óskað eftir leyfi frá Minjastofnun til þess að farga kútter Sigurfara sem staðið hefur við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi undanfarna áratugi. Bréf þessa efnis var lagt fram á fundi ráðsins á miðvikudaginn. Áður en skipinu verði fargað, fáist til þess leyfi, verður áhugasömum gefinn kostur á að eignast skipið.

Telur bæjarráðið að skipið, sem var smíðað árið 1885 í Englandi og keypt til Íslands upphaflega 1897, hafi verið rannsakað nægjanlega til þess að óhætt sé að farga því.

„Með þeim rannsóknum sem framkvæmdar voru telur Akraneskaupstaður sig hafa sinnt rannsóknum á kútter Sigurfara með fullnægjandi hætti en m.a. var haldið alþjóðlegt málþing og ítarleg rannsókn framkvæmd. Skrásetning var á heimildum um kútterinn, söfnun heimilda í munnlegri geymd, söfnun ljósmynda, skrásetning á byggingarlagi kúttersins og skrásetning á heildarmynd skipsins,“ segir í fundagerð bæjarráðsins.
Bæjarráð samþykkti bréfið til Minjastofnunar en þar segir meðal annars:
„Með niðurstöðum rannsóknanna og þeirri staðreynd að ekki er um skráðan safngrip að ræða óskar bæjarráð Akraness hér með eftir heimild Minjastofnunar Íslands til förgunar á kútter Sigurfara sem stendur á svæði Byggðasafnsins í Görðum Akranesi. Áður en til förgunar kemur yrði áhugasömum aðilum gefinn kostur á að eignast skipið en ef ekki næst samkomulag um slíkt yrði skipinu fargað.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »