Launafólk láti í sér heyra gegn spillingu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráðni sem afhjúpað …
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráðni sem afhjúpað var í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í síðustu viku og skipulagðri spillingu þar sem auðlindir fátækrar þjóðar eru misnotaðar. mbl.is/Hari

Alþýðusamband Íslands hvetur launafólk til að láta í sér heyra gegn spillingu og arðráni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu miðstjórnar ASÍ vegna um­fjöll­un­ar Kveiks og Stund­ar­inn­ar um um­svif Sam­herja í Namib­íu.

„Það er hrollvekjandi að sjá hvernig Samherji virðist hafa nýtt sér árangursríkt þróunarstarf íslenska ríkisins í Namibíu, siglt í kjölfar þess góða starfs og arðrænt fátækt samfélag,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni, þar sem „arðránið sem afhjúpað var í umfjölluninni“ er fordæmt.  

Miðstjórn ASÍ segir starfsaðferðir Samherja í Namibíu beina sjónum að fjölmörgum þáttum í okkar samfélagi og hlutverki Íslands í samfélagi þjóðanna. „Íslensk verkalýðshreyfing stendur með vinnandi fólki í Namibíu og rétti þess til mannsæmandi kjara.“

Starfsaðferðir sem verður að uppræta

Í yfirlýsingunni er tekið fram að ljóst sé að rannsakendur verði að fá skýrt umboð og fjármagn til að komast til botns í vinnubrögðum Samherja á erlendum vettvangi sem og innlendum eftir því sem tilefni er til. Þá segir að málið veki spurningar um samspil stjórnmála og stórfyrirtækja og nauðsyn þess að efla eftirlit og tryggja hlutleysi og möguleika eftirlitsstofnana til að sinna sínu nauðsynlega hlutverki.

„Það er nauðsynlegt lýðræðinu og trausti að rannsókn málsins verði vönduð og þeir sem ábyrgð bera taki afleiðingum gjörða sinna,“ segir í yfirlýsingunni. 

Þá minnir miðstjórn Alþýðusambandsins á að ein undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er sjávarútvegur þar sem starfa þúsundir félagsmanna aðildarfélaga ASÍ. „Það skiptir máli hverjum er treyst fyrir sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og það á að vera skýlaus krafa að farið sé vel með hana og allt samfélagið njóti arðs af henni. Meðferð sameiginlegra auðlinda okkar á ekki að dýpka stéttskiptingu eða misrétti á milli landssvæða.“

Miðstjórn ASÍ vill einnig minna á að starfsfólk Samherja er ekki ábyrgt fyrir hegðun stjórnar og annarra stjórnenda fyrirtækisins frekar en almennt starfsfólk annarra fyrirtækja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »