Verðmunur til athugunar í ráðuneytinu

„Verð á makríl í Noregi árið 2018 var til að …
„Verð á makríl í Noregi árið 2018 var til að mynda 300% hærra en á Íslandi,“ sagði Logi. mbl.is/Árni Sæberg

Efnt verður til sérstakrar vinnu í atvinnuvegaráðuneytinu vegna verðmunar á afla í sjávarútvegi. „Ég vænti að ég geti kynnt fljótlega á næsta ári með hvaða hætti við ætlum að standa að því verki en það er komið í ákveðið ferli og þar er miðað við að það verði óháð rannsókn sem leiði í ljós einhverjar skýringar á þeim verðmun sem hefur verið í umræðunni á Íslandi.

Þetta kom fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Tilefni fyrirspurnar Loga var Samherjamálið svokallaða og velti Logi því fyrir sér hvort einhver brögð væru í tafli í íslenskum sjávarútvegi. Nefndi hann þar m.a. óútskýrða milliverðlagningu og mun á verðmæti einstakra tegunda eftir því hvort þær væru seldar hérlendis eða í nágrannalöndunum.

Verð á makríl í Noregi árið 2018 var til að mynda 300% hærra en á Íslandi. Mikilvægt er að rannsaka málið því að ef fótur er fyrir þessu er verið að hafa fé af sjómönnum, af sveitarfélögum og af ríkinu. Þetta er því nauðsynlegt bæði fyrir almenning en ekki síður útgerðarfyrirtækin sjálf,“ sagði Logi.

Kristján Þór sagðist geta tekið undir þær athugasemdir sem komið hefðu fram um nauðsyn þess að gera á þessu hlutlæga athugun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »