Ósáttur við að þurfa að taka fisk úr sölu

Kristján Berg, betur þekktur sem Fiskikóngurinn.
Kristján Berg, betur þekktur sem Fiskikóngurinn. mbl.is/Golli

Kristján Berg, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, segir farir sínar ekki sléttar í færslu á Facebook sem hann birti í dag. Heilbrigðiseftirlitið hefur nú gert honum að taka úr sölu nokkrar tegundir af fiski sem unninn er með aldagömlum hefðum. 

„Mér finnst eins og það sé verið að rífa úr mér hjartað og sálina á sama tíma,“ skrifar Kristján.

Kristján hefur rekið fiskverslun í 31 ár. Í gær fékk hann heimsókn frá Heilbrigðiseftirlitinu. Þá var honum gert að taka úr sölu eina tegund af harðfiski, hnoðmör, reyktan lunda, hákarl og eitthvað fleira. Á þeim tíma sem hann hefur haft fiskbúðina opna segir hann fiskbúðir einnig hafa þurft að hætta að selja hrefnukjöt, svartfugl, sel, hnísukjöt og saltað selspik.

„Hnoðmörinn hef ég alltaf keypt af sömu konunni á Vestfjörðum frá því ég man eftir mér.

Reykti lundinn var ekki með límmiða, framleiðanda, síðasta söludag og þess háttar.

Hákarlinn er líka frá einum sem ég hef keypt af í tugi ára. Hann verkar þetta meðfram öðru starfi og er sennilega ekki með leyfi frá MAST til þess að verka hákarlinn,“ skrifar Kristján. 

„Kallast íslensk menning“

Hann veltir því fyrir sér hvort Íslendingar vilji að þessar aldagömlu hefðir lognist út af. 

„T.d. eru þeir sem verka siginn fisk ekki með leyfi, þeir taka bara fiska og hengja upp utan á bátana sína og láta síga. Harðfiskurinn er hengdur upp í hjöllum og vindurinn látinn blása um fiskinn þangað til að hann verður þurr og breytist í harðfisk,“ skrifar Kristján. 

„Þessir aðilar eru ekki með leyfi frá MAST til þess að verka og selja þessi rammíslensku matvæli. En þetta hefur verið gert í hundruð ára og kallast íslensk menning.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 1.967 kg
Ýsa 1.209 kg
Steinbítur 816 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 4.006 kg
23.4.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 305 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 308 kg
23.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 1.151 kg
Þorskur 363 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.524 kg
23.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Þorskur 1.664 kg
Samtals 1.664 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 1.967 kg
Ýsa 1.209 kg
Steinbítur 816 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 4.006 kg
23.4.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 305 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 308 kg
23.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 1.151 kg
Þorskur 363 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.524 kg
23.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Þorskur 1.664 kg
Samtals 1.664 kg

Skoða allar landanir »